Hlynur: Ógeðslega gaman að spila í Höllinni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. febrúar 2020 22:33 Hlynur skoraði 13 stig og tók ellefu fráköst. vísir/bára „
Ég átti ekki von á þessu. Ég bjóst við jöfnum leik ef ég á að vera hreinskilinn,“ sagði Hlynur Bæringsson, fyrirliði Stjörnunnar, eftir sigurinn örugga á Tindastóli, 70-98, í undanúrslitum Geysisbikars karla í kvöld. Stjarnan var tveimur stigum yfir í hálfleik, 43-45, en í seinni hálfleik voru yfirburðir Garðbæinga miklir. Þeir unnu seinni hálfleikinn, 53-27. „Við stöðvuðum sóknarfráköstin þeirra. Þeir náðu mörgum slíkum í fyrri hálfleik og fengu opin skot upp úr vissum stöðum sem þeir nýttu ágætlega. Í seinni hálfleik fengum við líka hraðaupphlaupsstöður þar sem Ægir sprengdi leikinn upp,“ sagði Hlynur. „Við spiluðum ekkert frábærlega í fyrri hálfleik, alls ekki. Tindastóll náði ekki fram sínu besta, það verður að viðurkennast.“ Vörn Stjörnunnar var mjög öflug í seinni hálfleik þar sem Tindastóll skoraði aðeins 27 stig. „Það komu augnablik þar sem þeir klikkuðu á opnum skotum en heilt yfir náðum við að þvinga þá í erfið skot,“ sagði Hlynur. Stjarnan mætir Grindavík í bikarúrslitaleiknum á laugardaginn. Með sigri verða Stjörnumenn bikarmeistarar annað árið í röð og í fimmta sinn alls. „Það er ógeðslega gaman að spila í Höllinni og ég er búinn a vinna nokkrum sinnum hérna. Ég geri allt sem í mínu valdi stendur til að vinna aftur,“ sagði Hlynur að lokum.
Dominos-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun: Tindastóll - Stjarnan 70-98 | Bikarmeistararnir örugglega í úrslit Eftir jafnan fyrri hálfleik hafði Stjarnan yfirburði í þeim seinni gegn Tindastóli í seinni undanúrslitaleiknum í Geysisbikar karla í körfubolta. 12. febrúar 2020 22:30 Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Naumur sigur dugði City Enski boltinn Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira
Umfjöllun: Tindastóll - Stjarnan 70-98 | Bikarmeistararnir örugglega í úrslit Eftir jafnan fyrri hálfleik hafði Stjarnan yfirburði í þeim seinni gegn Tindastóli í seinni undanúrslitaleiknum í Geysisbikar karla í körfubolta. 12. febrúar 2020 22:30