Vatnsdeigshringur með karamellufyllingu Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 14. febrúar 2020 10:00 Eva Laufey Kjaran er byrjuð að hugsa um bolludaginn. Myndir/Eva Laufey Kjaran
Bolludagurinn verður haldinn hátíðlegur þann 24. febrúar næstkomandi. Matgæðingurinn Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir er auðvitað byrjuð að undirbúa og hér deilir hún einni girnilegri uppskrift með lesendum Vísis, sem hægt er að gera fyrir bolludaginn eða annað tilefni. Uppskriftin er fyrir 10 til 12 bollur en má einnig nota í að gera vatnsdeigsbolluhring. Blóm gera svo allt fallegra. Vatnsdeigsbollur/hringur 10 – 12 bollur Hráefni: 100 g smjör 2 dl vatn 2 msk sykur 110 g hveiti 3 stór egg Aðferð: Forhitið ofninn í 200°C. (blástur) Hitið vatn, smjör og sykur saman í potti og látið suðuna koma upp. (gott er að láta vatn, sykur og smjör sjóða vel saman í 2 – 3 mínútur áður en hveitið er sett út í. Setjið hveiti út í, hrærið saman og látið kólna í 4 mínútur. Takið pottinn af hitanum og setjið eggin út í eitt í einu, sláið vel saman á milli. Það er líka ágætt að setja deigið í hrærivélaskál og hræra þannig saman. Setjið deigið í sprautupoka og sprautið bollunum á pappírsklædda bökunarplötu en það má auðvitað gera það líka með tveimur skeiðum. Bakið bollurnar í 25 – 30 mínútur, það er mikilvægt að opna ekki ofninn fyrstu 15 mínúturnar af bökunartímanum því þá er hæta á að bollurnar falli. Myndir/Eva Laufey Kjaran Karamellufylling 500 ml rjómi (gott að nota g-rjóma frá MS, hann er stífari) 2 tsk vanillusykur 1 msk karamellusósa (uppskrift hér að neðan) 100 g karamellukurl Aðferð: Þeytið rjóma og vanillusykur þar til rjóminn er stífþeyttur. Bætið karamellusósu og karamellukurli saman við með sleikju. Setjið rjómann í sprautupoka og sprautið á milli botnanna. Myndir/Eva Laufey Kjaran Karamelluglassúr 150 g söltuð karamellusósa 1 – 2 dl flórsykur, magn fer eftir smekk eða eftir því hversu þykkt kremið á að vera fyrir ykkar smekk. Aðferð: Blandið sósunni og flórsykrinum saman þar til þið eruð sátt við þykktina, sem má ekki vera of þunn því þá lekur kremið út um allt. Söltuð karamellusósa: 200 g sykur 4 msk smjör 1 dl rjómi ½ tsk sjávarsalt Aðferð: Bræðið sykurinn á pönnu án þess að hreyfa við honum, þegar sykurinn er allur bráðinn bætið þið smjörinu út á pönnuna og hrærið stanslaust. Ágætt að lækka hitann á hellunni í miðlungshita. Hellið rjómanum því næst saman við og hrærið áfram þar til karamellusósan er orðin slétt og fín. Saltið sósuna í lokin. Hellið sósunni í skál/krukku og leyfið henni að kólna alveg, hún þykknar um leið og hún kólnar.
Bolludagur Eva Laufey Matur Uppskriftir Vatnsdeigsbollur Tengdar fréttir Tólf konur valdar í fjölmiðlaþjálfun Félag kvenna í atvinnulífinu og Ríkisútvarpið hafa hleypt af stokkunum verkefni til þriggja ára sem ætlað er að auka fjölbreytni viðmælenda í íslenskum fjölmiðlum. 28. janúar 2020 15:00 Eva Laufey og Svavar Örn stýra saman Bakaríinu á Bylgjunni Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir hefur störf á Bylgjunni um helgina. 6. febrúar 2020 09:30 Buffalo blómkáls taco með gráðostasósu Virkilega vel heppnuð uppskrift frá Evu Laufey Kjaran Hermannsdóttur, 28. janúar 2020 11:00 Mest lesið Eiður Smári og Halla Vilhjálms í skíðaævintýri Lífið Flytur ekki inn í lúxusíbúðina Lífið Hefndi kossins með kossi Lífið Hundleið á að bíða eftir karlmanni og greip í taumana Lífið Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár Lífið samstarf Tróð Bjarna og fjölskyldu í Toyota Yaris Lífið Sýnir vonandi öðrum konum að lífið er ekki búið eftir þrítugt Lífið Tengdist Hopkins í gegnum tólf spora ferlið Lífið Borgarstjórar og forsetar á ólgandi listasýningu Menning Auddi og Steindi í BDSM Lífið Fleiri fréttir Gerir mánudagsfiskinn skemmtilegri Er Dúbaí-súkkulaðið virkilega svona gott? Kryddbrauðið sem kom viðræðunum af stað Andrés, Daníel og Ásbjörn Íslandsmeistarar Maturinn á boðstólnum yfir Super Bowl Sjá meira
Tólf konur valdar í fjölmiðlaþjálfun Félag kvenna í atvinnulífinu og Ríkisútvarpið hafa hleypt af stokkunum verkefni til þriggja ára sem ætlað er að auka fjölbreytni viðmælenda í íslenskum fjölmiðlum. 28. janúar 2020 15:00
Eva Laufey og Svavar Örn stýra saman Bakaríinu á Bylgjunni Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir hefur störf á Bylgjunni um helgina. 6. febrúar 2020 09:30
Buffalo blómkáls taco með gráðostasósu Virkilega vel heppnuð uppskrift frá Evu Laufey Kjaran Hermannsdóttur, 28. janúar 2020 11:00