Handgerðar dýnur frá King Koil tryggja góðan nætursvefn Rekkjan kynnir 24. janúar 2020 09:30
Rekkjan hefur selt hágæða rúmdýnur frá ameríska framleiðandanum King Koil frá árinu 1994. King Koil er rótgróið fjölskyldufyrirtæki sem þekkt fyrir gæði og metnaðarfulla framleiðslu. Saga þess teygir sig aftur til ársins 1898 en þá setti Samuel Bronstein litla verksmiðju á laggirnar í Minnesota. Fyrirtækið kallaði hann einfaldlega United States Bedding og hóf framleiðslu á handgerðum rúmdýnum með sex starfsmenn. Upp úr 1930 hafði fyrirtækið vaxið mikið og var í fararbroddi í hönnun rúmdýna og framleiðslutækni í Bandaríkjunum. Nafninu var breytt í King Koil og allar götur síðan hefur fyrirtækið verið leiðandi í heilsurúmabransanum og framleitt hágæða heilsudýnur sem seldar eru um allan heim. Þriðja kynslóð fjölskyldunnar heldur nú um stjórnartaumana og framleiðir fyrirtækið á bilinu átta til tíu þúsund dýnur á dag! King Koil er jafnframt eina fyrirtækið sem framleiðir dýnur vottaðar af FCER, Alþjóða rannsóknarsamband Kírópraktora, og af Good Housekeeping, stærstu neytendasamtökum í Bandaríkjunum. „Við eigum frábært samband við þennan framleiðanda og heimsækjum verksmiðju þeirra í Connecticut á hverju ári. Þau eru sjálf miklir Íslandsvinir og heimsækja landið reglulega,“ segir Einar Herbertsson hjá Rekkjunni. „Gæðin í framleiðslunni hjá þeim eru einstök. Það er stöðugt verið að þróa nýjar vörur og nota eingöngu sér valin efni, tvíhert sérvalið stál í gormakerfin og vottuð efni. Dýnurnar eru svæðaskiptar og laga sig einstaklega vel að líkamanum og tryggja góða þyngdardreifingu. Dýnunum þarf ekki að snúa. Við eigum einnig dýnur úr Natura línunni þeirra en þær dýnur eru úr náttúrulegu latexi og bólstraðar með lífrænt ræktaðri bómull o.s.frv. Dýnurnar frá King Koil eru ofboðslega þægilegar og fólk hvílist vel. Þetta er einstök vara á sanngjörnu verði.“ Í Rekkjunni er að finna mikið úrval af heilsurúmum frá King Koil og bjóðum við alla velkomna að skoða úrvalið.Þessi kynning er unnin í samstarfi við Rekkjuna.
Heilsa Hús og heimili Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Lífið Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ Lífið „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Lífið Fleiri fréttir Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira