Middlesbrough og Tottenham gerðu 1-1 jafntefli í þriðju umferð enska bikarsins í dag og þurfa því að mætast á nýjan leik á heimavelli Tottenham.
Tottenham réð ferðinni í fyrri hálfleik en gekk illa að skapa sér opin marktækifæri. Staðan var markalaus í hálfleik.
1 - José Mourinho's sides have registered just one clean sheet across his last 17 games in all competitions, failing to keep a clean sheet in 15 successive away games. Faucet. pic.twitter.com/VSXRg0KlGi
— OptaJoe (@OptaJoe) January 5, 2020
Heimamenn í Boro komust yfir með marki Ashley Fletcher á fimmtu mínútu síðari hálfleiks en Brasilíumaðurinn tryggði Tottenham annan leik með marki á 61. mínútu.
Lokatölur 1-1 og þurfa því liðin að mætast aftur um miðjan mánuðinn.