Lífið

„Jógvan pissar svo mikið á nóttunni og það verður án efa mikið bras á honum“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jógvan og Friðrik lögðu í hann í hádeginu í dag. 
Jógvan og Friðrik lögðu í hann í hádeginu í dag. 

Tónlistarmennirnir Friðrík Ómar og Jógvan Hansen lögðu af stað í tónleikaferðalag um Ísland í hádeginu í gær.

Þeir ætla að halda 22 tónleika á næstu 24 dögum og byrja þeir í Höfn í Hornafirði í kvöld. Þeir enda síðan á Dalvík 7. ágúst.

Jógvan og Friðrik ferðast um landið saman í húsbíl og gista því saman næstu 24 daga.

„Við erum með bílstjóra. Rifumst svo mikið um það hver ætti að keyra svo það varð lendingin,“ segir Friðrik Ómar í húsbílnum í gær.

„Við erum búnir að vera vinir í fimmtán ár en aldrei verið svona lengi í einu saman og það verður sennilega mjög krefjandi. En konan hans Jógvans er fegin að vera laus við hann. Jógvan pissar svo mikið á nóttunni og það verður án efa mikið bras á honum,“ segir Friðrik.

„Við vorum að leggja af stað og ef þetta fer eitthvað úrskeiðis þá bara hendi ég honum út. Mjög einfalt fyrir Færeying. Ég er með veiðistöngina með mér og fer eitthvað að veiða. Friðrik er með lóðin með sér og ætlar að verða rosalega massaður eftir ferðina. Ég verð saddur og sæll,“ segir Jógvan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.