Lífið

Léttist um þrettán kíló á einum mánuði og skeit blóði

Stefán Árni Pálsson skrifar
Aron fer um víðan völl í viðtalinu.
Aron fer um víðan völl í viðtalinu.

Aron Már Ólafsson er einn efnilegasti leikari þjóðarinnar og hefur um langt skeið verið ein vinsælasta samfélagsmiðlastjarna Íslands. Í viðtali við Sölva Tryggvason í nýju podcasti Sölva talar Aron um upphafið á leiklistarferlinum, þegar hann fékk sitt fyrsta hlutverk á sviði, sem boxarinn Leroy í Bugsy Malone.

„Ég var alveg að kúka í buxurnar allt ferlið….þegar ég fæ hlutverkið þá eru bara dansarastrákar og fimleikastrákar sem eru í þessu og ég bara að borða hamborgara og var hættur í íþróttum,, Segir Aron meðal annars og lýsir því síðan hvað hann gerði í kjölfarið eftir að hafa hitt einkaþjálfara sem sagði honum að skera út kolvetni. Aron tók það bókstaflega og tók út öll kolvetni og hálfsvelti sig, án þess að hafa aðlagað sig neitt frá því að borða mikið og óhollt.

„Ég kem heim einhvern tímann eftir æfingu og dett niður í sófann og það líður yfir mig. Svo fer ég á klósettið og skít blóði og svo fer ég á sjúkrahús, þar sem mér er sagt að ég sé með bullandi næringarskort,” segir Aron.

 

Hann léttist í kjölfarið um 13 kílógrömm á einum mánuði og segir þetta tímabil til marks um þær öfgar sem hann eigi til þegar hann bítur eitthvað í sig. Hann segist elska að starfa við leiklistina og sér ekki fram á annað en að hann muni halda því áfram.

Í viðtalinu ræða Sölvi og Aron um systurmissir Arons, samfélagsmiðlana, leiklistina, upplifanir Arons í Suður-Ameríku og margt fleira. Umræðan um Bugsy Malone tímann hefst þegar rúmlega 32 mínútur eru liðnar af viðtalinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.