Lífið

Jón Gnarr fer á kostum í nýju myndbandi Love Guru og Dodda Litla

Stefán Árni Pálsson skrifar
Love Guru og Doddi unnu lagið saman. 
Love Guru og Doddi unnu lagið saman. 

Love Guru og Doddi litli hafa tekið höndum saman í nýju lagi Desire en þetta er í fyrsta skipti sem þessir félagar gefa út tónlista saman, þrátt fyrir að hafa verið í nánu samstarfi í mörg ár.

„Þegar Love Guru er annarsvega þá er ekki um samstarf að ræða það er hann og svo þjónarnir hans, eins og þjóðin veit þá hafa margir þekktir Íslendingar unnið með Guru en gera það bara einu sinni, þar má nefna Hreim Heimisson, Einar Ágúst, Nylon, Karitas Hörpu, Felix Bergsson, Beggi í Sóldögg og fleiri,“ segir Þórður Helgi Þórðarson, betur þekktur sem Doddi litli í samtali við Vísi.

„Love Guru er ekki erfiður þegar maður veit hverju maður á von, ég hef umgengist hann í 17 ár svo ég vissi hvað ég var að fara út í. Endalaust reykelsi og ilmolíur í hljóðverinu, hann borðar til dæmis bara pulled pork og rófustöppu og mikið af því og skilur leifarnar eftir út um allt hljóðver. Gífurlegur gestagangur, miðaldra kvenna truflaði vinnu okkar mikið og það að hann syngi bara klæddur pungbindi getur verið pirrandi.“

Doddi segist ekki ætla starfa aftur með Love Guru í bráð.

„Ég eins og flestir, ætla að láta það duga að gera með honum þetta eina lag. Ég mun halda áfram að gera mína dark tónlist og hann mun örugglega halda áfram með sitt silly hopp fyrir hopp glaða landsmenn svo lengi sem hann kemst í pulled pork og rófustöppu.“

Vísir frumsýnir nýtt myndband við lagið en Jón Gnarr fer meðal annars með hlutverk í myndbandinu.

Klippa: Love Guru og Doddi Litli - Desire





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.