Alls voru 440 verk innsend til FÍT-verðlaunanna 2020. Innsend verk í keppnina hafa aldrei verið fleiri. Í flokknum Auglýsingar voru veitt gull- og silfurverðlaun í nokkrum undirflokkum. Þeir eru Auglýsingaherferðir, Umhverfisgrafík, Opinn flokkur og Stakar auglýsingar fyrir prentmiðla. Lista yfir alla verðlaunahafa ásamt umsögnum um verkefnin má finna hér neðar í fréttinni.
FÍT verðlaunahátíðin átti að fara fram í mars en vegna ástandsins í samfélaginu var ákveðið að tilkynna verðlaunahafana hér á Vísi og halda formlega afhendingu síðar. Síðustu daga hefur verið tilkynnt um verðlaunahafa í öllum 21 flokkunum og var þessu skipt upp í fjórar tilkynningar, þessi er sú síðasta. Í fyrramálið klukkan 09:00 verður svo tilkynnt hvaða gullverðlaunahafi hlýtur hin eftirsóttu aðalverðlaun FÍT. Verðlaunað verður það verk sem þykir eftirminnilegt og áhrifamikið í sínum flokki og góður fulltrúi fyrir sköpunargáfu Íslendinga í samkeppnum á alþjóðavísu.
Auglýsingaherferðir

Gullverðlaun
Megavika Domino’s
Herferð sem myndar einstaklega sterka sjónræna heild sem nær til breiðs hóps.. Falleg hönnun og gott samræmi út í gegn. Vel unnin hreyfigrafík sem nýtt er á skemmtilegan hátt.
Hönnun: Hrafn Gunnarsson, Gunnhildur Karlsdóttir, Eyrún Eyjólfsdóttir, Jón Páll Halldórsson, Þorvaldur Sævar Gunnarsson, Heiðar Þór Jónsson, Brandenburg.

Gullverðlaun
Kranavatn — Inspired by Iceland
Skemmtileg herferð sem er einstaklega viðeigandi fyrir markhópinn, vekur fólk til umhugsunar og bendir á skemmtilegan hátt á sérstöðu landsins.
Hönnun: Sævar Steinn Guðmundsson og Bertrand Kirschenhofer , Íslenska auglýsingastofan.

Silfurverðlaun
Fullt af allskonar — Kringlan
Herferð sem nær á skemmtilegan hátt að sýna gnægtir Kringlunnar. Litríkt og leikandi myndefni grípur augað og smáatriðin gleðja hugann. Skemmtilegar hugmyndir sem búið er að föndra af kostgæfni og skila sér í vönduðum og fallegum útfærslum.
Hönnun: Sigrún Gylfadóttir, Vala Þóra Sigurðardóttir, Alex Jónsson, Ástrós Linda Ásmundsdóttir, Kontor Reykjavík.

Silfurverðlaun
Jafnaðu þig hjá Orkunni — Orkan
Skemmtileg herferð sem fær mann til að brosa út í annað. Fjölbreyttar og ólíkar útfærslur hannaðar fyrir hvern miðil en ávallt tengdar saman með slagorði herferðarinnar.
Hönnun: Hrafn Gunnarsson, Gísli Arnarson, Davíð Arnar Baldursson, Brandenburg.
Umhverfisgrafík

Gullverðlaun
Þitt nafn bjargar lífi — Íslandsdeild Amnesty International
Snjöll og einstaklega viðeigandi hugmynd fyrir viðfangsefnið og miðilinn. Einföld hugmynd sem er vel útfærð og auðskiljanleg en hreyfir samt við manni.
Hönnun: Elsa Nielsen, Kontor Reykjavík

Silfurverðlaun
Jafnaðu þig á jólaösinni — Orkan
Umhverfisgrafík sem er skemmtilegt tvist á herferð og nær að vera rétt hugmynd á réttum stað. Vandað til verka og skapar sterka upplifun fyrir þátttakendur.
Hönnun: Hrafn Gunnarsson, Gísli Arnarson, Brandenburg.
Opinn flokkur

Gullverðlaun
Jól í Húrra Reykjavík - Húrra Reykjavík
Einföld hugmynd en virklega skemmtileg, þar sem klisjum jólanna er snúið á óvæntan og frumlegan hátt. Smellpassar bæði fyrir búðina og markhópinn.
Hönnun: Þorgeir K. Blöndal, Brandenburg.

Gullverðlaun
Hnútar
Virklega fallega hannað skrautletur, sem er einstaklega vandað og hvert smáatriði úthugsað. Flott útfærsla með samsuðu á tveim stílum.
Hönnun: Viktor Weisshappel Vilhjálmsson, Ulysses.
Stakar auglýsingar fyrir prentmiðla

Gullverðlaun
Fullt af allskonar fyrir gleðilega hátíð - Kringlan
Einstaklega falleg framsetning á skemmtilegri hugmynd. Klassísk klisja tekur óvænta stefnu en nær að halda bæði hátíðleika og vörum í forgrunni. Fallega stílfært og sterkt myndmál.
Hönnun: Sigrún Gylfadóttir, Vala Þóra Sigurðardóttir, Alex Jónsson, Ástrós Linda Ásmundsdóttir, Elsa Nielsen, Kontor Reykjavík.

Silfurverðlaun
Megavika Domino’s
Vel heppnaður teiknistíll fær að njóta sín til fulls og skilaboðin eru einföld. Grípur augað í hvert sinn en fær mann líka til að staldra við og skoða skemmtileg smáatriði.
Hönnun: Hrafn Gunnarsson, Gunnhildur Karlsdóttir, Jón Páll Halldórsson, Brandenburg.
Öll úrslit FÍT verðlaunanna 2020 hafa verið tilkynnt hér á Vísi síðustu daga. Aðalverðlaun FÍT verða svo tilkynnt á morgun á slaginu klukkan 09.
FÍT, FÉLAG ÍSLENSKRA TEIKNARA var stofnað 23. nóvember 1953. FÍT keppnin er haldin árlega og þar er keppt um það besta í grafískri hönnun og myndlýsingum á Íslandi. Innsendingar í keppnina eru einnig opnar fyrir öðrum en FÍT meðlimum, enda er markmið keppninnar að endurspegla það besta í grafískri hönnun og myndlýsingum á Íslandi en ekki eingöngu það besta meðal félagsmanna.