Lífið

Emmsjé Gauti gefur út eitt myndband við tvö ný lög

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gauti er einn vinsælasti rappari landsins. 
Gauti er einn vinsælasti rappari landsins. 

Rapparinn Gauti Þeyr Másson, betur þekktur sem Emmsjé Gauti, gaf á dögunum út nýtt myndband við tvö lög. Um er að ræða lögin Bleikt ský og Flughræddur sem finna má á komandi plötu frá rapparanum.

Það var Hlynur Helgi Hallgrímsson og Gauti sjálfur sem leikstýrðu myndbandinu en lögin fjalla annars vegar um að vera á bleiku skýi og hins vegar um að líða illa og geta varla vaknað upp á morgnanna. 

Gauti ræddi um myndbandið og komandi plötu í Einkalífinu á dögunum og sagði þá.

„Þessa plata fjallar um margt. Hún heitir Bleikt ský og fjallar um að vera svolítið á bleiku skýi,“ segir Gauti um komandi plötu.

„En hún er líka samin þegar mér leið aðeins verr áður en ég fór að gera hluti sem fékk mig til að líða betur. Eitt lag á plötunni heitir einnig Bleikt ský og annað heitir Flughræddur sem endurspeglar kannski þessar tvær hliðar á plötunni. Hún er high tempó ég er bestur í heimi en líka bara ég að meika ekki að vakna. Hún fer á báða staðina.“

Hann segir að á plötunni geti fólk heyrt klassískan Emmsjé Gauta en líka nýja týpu af rapparanum en hann stefnir á það að gefa plötuna út í maí.

Hér að neðan má horfa á þáttinn í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.