Lífið

Stjörnulífið: Mömmurnar fengu sviðið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mæðradagurinn var í gær um heim allan. 
Mæðradagurinn var í gær um heim allan. 

Stjörnulífið er liður á Vísi en þar verður farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga og jafnvel deila því með fylgjendum sínum.

Veitingastaðurinn Sjáland var opnaður í Garðabæ um helgina. Friðrik Ómar, Selma Björns og María Björk voru á meðal þeirra sem litu við. Veitingastaðurinn stendur við göngu- og hjólastíginn við sjóinn og voru fjölmargir sem lögðu hjólum sínum, köstuðu mæðinni og skoluðu niður drykk í sólinni um helgina.

Crossfit-stjarnan Katrín Tanja Davíðsdóttir birti fallegar myndir af sér með móður sinni enda var mæðradagurinn í gær. 

 Sara Sigmundsdóttir, önnur Crossfit-stjarna, heiðraði einnig mömmu sína með góðum myndum. 

 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra tók þátt í fyrsta þættinum af Sápunni á Stöð 2.

 Móðir Evu Ruzu skellti sér á hestbak.

Sonur Róbert Wessman kallar pabba sinni iðulega mömmu. Því var haldið upp á mæðradaginn hjá viðskiptamanninum í gær. 

 Leikkonan Kristín Pétursdóttir skellti sér út á lífið. 

Besta hlutverkið í lífi samfélagsmiðlastjörnunnar Camillu Rut er að vera móðir. Hún á von á sínu öðru barni á næstu vikum. 

 Leikkonan Ragnildur Ragnarsdóttir birti fallega mynd af sér og syni sínum í tilefni mæðradagsins. 

 Samfélagsmiðlastjarnan Bryndís Líf fór út að borða og naut sín í botn.

Herra Hnetusmjör birti mynd af unnustu sinni og syni og einnig mynd af sér með móður sinni og það í tilefni af mæðradeginum.

Sjónvarpskonan Eva Laufey rifjaði upp þegar Ingibjörg Rósa, eldri dóttir hennar, kom í heiminn. 

Móeiður Lárusdóttir eignaðist stúlku á dögunum og birtir í tilefni gærdagsins mynd af sér með frumburðinum. 

 Hanna Rún Bazev Óladóttir var hress í morgunsárið um helgina. 

Alexandra Helga Ívarsdóttir hefur verið í sjálfskipaðri sóttkví í um sjö vikur í Manchester þar sem hún býr ásamt eiginmanninum Gylfa Þór Sigurðssyni.

 Hárgreiðslumaðurinn Baldur Rafn Gylfason er stoltur af eiginkonu sinni.

Ásdís Rán hefur verið í einangrun í Búlgaríu og fær loksins að fara út á meðal fólks eftir 54 daga. 

Fjölmiðlakonan Hugrún Halldórsdóttir er þakklát fyrir afmæliskveðjurnar í síðustu viku en þá varð hún 36 ára. Hún slakaði á á Heilsustofnuninni í Hveragerði.

 Sumarið virðist sannarlega komið hjá Birgittu Líf.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.