Lífið

Mæðgurnar klæddu sig upp fyrir kökuboð og Eva skellti sér í brúðarkjólinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Eva Laufey skellti sér í brúðarkjólinn. 
Eva Laufey skellti sér í brúðarkjólinn. 

Í ljósi aðstæðna kunni Eva Laufey ekki við að biðja gesti sína að halda matarboð í þáttunum Matarboð með Evu Laufey og því ákvað hún að bjóða áhorfendum Stöðvar 2 í matarboð heim sín upp á Akranesi þar sem hún eldaði fyrir fjölskyldu sína.

Dætur Evu, þær Ingibjörg Rósa og Kristín Rannveig fóru á kostum í síðasta þætti og það sama má segja um þáttinn á miðvikudagskvöldið.

Þær mæðgur ákváðu að klæða sig upp og halda kökuboð og meðal annars var boðið upp á Oreo-bollakökur með hvítsúkkulaðikremi en hér að neðan má sjá uppskriftina sjálfa.

Klippa: Mæðgurnar klæddu sig upp fyrir kökuboð

Oreo-bollakökur með hvítsúkkulaðikremi

20-24 bollakökur

250 g smjör, við stofuhita

4 dl sykur

4 egg

4-5 dl mjólk (eða rjómi)

6 dl hveiti

2-3 tsk. lyftiduft

1 tsk. matarsódi

2 tsk. vanillu-extract (eða vanillusykur)

16 Oreo-smákökur (1 pakki)

1. Hitið ofninn í 180°C (blástur)

2. Þeytið saman smjör og sykur í þrjár mínútur, bætið einu og einu eggi saman við. Þeytið vel á milli.

3. Sigtið saman hveiti og lyftiduft a.m.k. þrisvar sinnum. Bætið hveitiblöndunni, matarsódanum, vanillunni og mjólkinni saman við og þeytið mjög vel í nokkrar mínútur þar til blandan verður orðin silkimjúk.

4. Hakkið Oreo-smákökurnar í blandara eða þá bara með handaflinu í mjög smáa bita.

5. Skiptið deiginu niður í bollakökuform og bakið í 15-18 mínútur. Kælið kökurnar mjög vel áður en þið smyrjið á þær kremi.

Hvítt súkkulaðikrem

200 g smjör, við stofuhita

300 g rjómaostur, við stofuhita

500 g flórsykur

2 tsk. vanillu-extract eða vanillusykur

140 g hvítt súkkulaði

Þeytið saman smjör, rjómaost og flórsykur í nokkrar mínútur, því lengur sem þið hrærið kremið því betri áferð verður á því. Bræðið hvítt súkkulaði í vatnsbaði og bætið við smjörkremið ásamt vanillu. Blandið öllu vel saman þar til kremið verður orðið ansi létt, ef þið ætlið að nota matarlit þá bætið honum við rétt í lokin.

Ég skreytti kökurnar með Oreo-smákökum, einfaldlega vegna þess að ég fæ ekki nóg af þessum kökum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.