Segja að De La Cruz gæti ýtt Gylfa út hjá Everton Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. maí 2020 11:00 Nicolas De la Cruz í leik með argentínska félaginu River Plate þar sem hann hefur verið að gera góða hluti síðustu ár. Getty/Marcelo Endelli
Argentínska blaðið Olé segir frá áhuga Everton á hinum 22 ára gamla miðjumanni River Plate en Nicolas De La Cruz hafði áður verið orðaður við Manchester City í vetur. Everton er samt að keppa um leikmanninn við þýska liðið Borussia Dortmund samkvæmt frétt Olé en De La Cruz hefur spilað með argentínska félaginu River Plate frá árinu 2017. "It could spell the end of Gylfi Sigurdsson's Goodison career." ?? #efc pic.twitter.com/VORlu3NT6w— Toffee TV (@ToffeeTVEFC) May 6, 2020 Nicolas De La Cruz er alinn upp hjá liði Liverpool en ekki liðinu úr Bítlaborginni heldur liði Liverpool frá Montevideo. Nicolas De La Cruz hefur skorað 11 mörk og gefið 20 stoðsendingar í 79 leikjum fyrir River Plate. Sumir hafa reyndar áhyggjur af hæð leikmannsins en Nicolas De La Cruz er aðeins 167 sentímetrar á hæð. Hann er hins vegar með góða tækni, snöggur og vinnusamur. Það er líka með honum að hann er fæddur árið 1997 og á því öll sín bestu ár eftir. Nicolas De La Cruz getur spilað í bestu stöðunni hans Gylfa og óttast því sumir að hann muni ýta íslenska landsliðsmanninum út kaupi Everton hann. De La Cruz getur einnig spilað á báðum vængjum. De La Cruz var orðaður við Manchester City í nóvember en það er hægt að kaupa upp samninginn hans fyrir nítján milljónir punda. Pep Guardiola tókst ekki að landa honum í janúar og nú er að sjá hvort Carlo Ancelotti takist það í sumar.
Enski boltinn Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Shaq í Stjörnuna Körfubolti Fleiri fréttir Í beinni: Chelsea - Barrow | Lítil hindrun fyrir Chelsea Í beinni: Man. City - Watford | City-menn standa í ströngu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Endurkoma hjá Dagnýju Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Ferguson saknar fótboltans Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Hafi snúist hugur og vilji nú fara til Liverpool Segir að hann myndi kýla netníðingana í nefið ef þeir stæðu fyrir framan hann Sjá meira