Milka er +130 í tíu leikjum í vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. desember 2019 12:00 Dominykas Milka. Vísir/Daníel
Keflvíkingar voru næstum því tvö hundruð stigum slakari þegar Dominykas Milka var á bekknum í fyrri umferð Domino´s deildar karla í körfubolta. Dominykas Milka átti stórbrotin leik með Keflavíkurliðinu í gær þegar liðið vann 23 stiga sigur á ÍR í 11. umferðinni. Keflavík hélt því öðru sæti deildarinnar og verður þar yfir jólin. Milka endaði leikinn í gær með glæsilega þrennu, skoraði 16 stig, tók 14 fráköst og gaf 14 stoðsendingar. Hann fékk fyrir þetta 37 framlagsstig og það sem meira er að Keflavík vann með 37 stigum þær rúmu 34 mínútur sem hann spilaði. Dominykas Milka hefur spilað í rúmar 344 mínútur með Keflavík í deildinni í vetur og þær hefur Keflavíkurliðið unnið með 130 stigum. Keflavík er því að vinna með þrettán stigum að meðaltali þegar hann er inn á vellinum. Milka tók út bann í einum leik sem var á móti Haukum en í honum skoraði Keflavíkurliðið bara 70 stig samtals og tapaði með sextán stigum. Keflavíkurliðið hefur leikið tæpar 96 mínútur án Dominykas Milka í vetur og þeim hluta leikjanna hefur liðið tapað með 63 stigum. Það er því 193 stiga sveifla hvort Dominykas Milka er inn á eða útaf vellinum. Það er rosalegur munur. Keflavík er líka í mínus þegar tveir aðrir leikmenn eru á bekknum en það eru þeir Hörður Axel Vilhjálmsson og Khalil Ullah Ahmad.Keflavíkurliðið í fyrri umferð Dominos deildar karla 2019-20:Dominykas Milka inn á vellinum Keflavík að vinna með 130 stigumDominykas Milka ekki á vellinum Keflavík að tapa með 63 stigumSveiflurnar hjá lykilleikmönnum Keflavíkur í vetur Dominykas Milka - Inná: +130 - Útaf: -63 Hörður Axel Vilhjálmsson - Inná: +90 - Útaf: -23 Khalil Ullah Ahmad - Inná: +82 - Útaf: -15 Deane Williams - Inná: +55 - Útaf: +12 Guðmundur Jónsson - Inná: +34 - Útaf: +33 Ágúst Orrason - Inná: +28 - Útaf: +39 Magnús Már Traustason - Inná: +18 - Útaf: +49 Reggie Dupree - Inná: +15 - Útaf: +52
Dominos-deild karla Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin Körfubolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Enski boltinn Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Man. City verður meistari Sport Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Handbolti Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Enski boltinn „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu Sjá meira