Une Misère leiða saman rappstjörnur, þungarokkara og drungapönkara Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar 13. desember 2019 14:00 Gunnar Ingi Jones, Fannar Már Oddsson, Jón Már Ásbjörnsson, Benjamín Bent Árnason og Þorsteinn Gunnar Friðriksson mynda Une Misère. Une Misère
Fyrsta breiðskífa þungarokkssveitarinnar Une Misère, Sermon, kom út í byrjun nóvember og verður útgáfunni fagnað í Iðnó næstkomandi laugardag. Athygli er vakin á því að ekkert aldurstakmark er á tónleikana. Samkvæmt Þorsteini Gunnari Friðrikssyni, bassaleikara sveitarinnar, stendur til að leika plötuna nýju í heild sinni, sem verði líklega ekki gert aftur. Þar á meðal eru að minnsta kosti tvö lög sem ekki hafa verið spiluð áður á tónleikum. Það hefur verið í stefnuskrá sveitarinnar að brúa bilið milli alls kyns tónlistaráhugafólks á tónleikum sínum. Því eru upphitunarlistamennirnir af fjölbreyttum toga, en auk Une Misère sjálfra stíga á stokk rappkapparnir Birnir og Joey Christ og drungagengið Kælan mikla. Í samtali við Vísi segir Þorsteinn, sem oftast er kallaður Steini Milljón, að þeir leitist í tónleikahaldi sínu við að reyna að „hafa þetta ekki eitthvað svona fyrirsjáanlegt.“ Þeir vilji „hrista þetta upp og tengja saman mismunandi tónlistarstefnur.“ Upphitunaratriðin segir Steini vera góða félaga sveitarinnar. Birnir kemur fram á tónleikunum í Iðnó á laugardaginn.vísir/vilhelm Þeir hafi kynnst Joey Christ og Birni á Aldrei fór ég suður þegar þeir spiluðu í partýi fyrir listamennina og aðstandendur á sunnudeginum. „Þetta byrjar á að við hoppum á svið strákarnir í Une Misère og tökum lagið með Limp Bizkit, Break Stuff.“ Þegar þeir voru að stilla gítarana fyrir lagið þóttist Magni í Á móti sól vita að þeir væru að henda í annan þekktan slagara sem notast við sömu gítarstillingu. „Þá hoppar Magni á svið og segir „þið eruð ekkert að fara taka Killing in the Name of án mín.““ Sveitin tók því Killing in the Name of beint í kjölfarið á Break Stuff og einhvern æxlaðist það að á eftir þessum rokkslögurum spiluðu þeir undir Joey Christ, eða Jóhanni Kristóferi, og Birni í lögunum Joey Cypher og Já ég veit. Tónleikaplakatið. Kæluna miklu þekki þeir hins vegar einfaldlega í gegnum grasrótarsenuna, en flestir meðlimanna höfðu verið í fjölmörgum þungarokkssveitum áður en Une Misère var stofnuð. Hörð stefna Une Misère var samkvæmt Steina stofnuð í þeim tilgangi „að vera harðasta band Íslands.“ „Okkur fannst Nails vera harðasta band í heimi á þeim tíma,“ segir Steini. Það sem veiti þeim innblástur í dag sé mun fjölbreyttara og komi úr öllum áttum. „Þetta er meiri hræripottur núna.“ Steini nefnir þó sveitirnar Slipknot og Knocked Loose sérstaklega. Á nýju ári leggur sveitin upp í tveggja vikna tónleikaferðalag um Mið-Evrópu, en á honum hita þeir upp fyrir Bandaríkjamennina í Darkest Hour, sem Steini segir spila „strangheiðarlegt metalcore“. Þýski útgáfurisinn Nuclear Blast gefur plötuna nýju út, en upptökur á henni hófust í febrúar á þessu ári undir handleiðslu Sky van Hoff. Sveitin vakti fyrst athygli árið 2017 og þá meðal annars fyrir mixteipið 010717, sem eins og gefur að skilja kom út 1. júlí 2017.
Tónlist Tengdar fréttir Une Misère á mála hjá Nuclear Blast Íslenska öfgarokkssveitin Une Misère hefur skrifað undir plötusamning við þýska útgáfurisann Nuclear Blast. 16. janúar 2019 11:46 Mest lesið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Lífið Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Lífið Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Lífið Hera Björk mun kynna stigin Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Lífið Fleiri fréttir „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira
Une Misère á mála hjá Nuclear Blast Íslenska öfgarokkssveitin Une Misère hefur skrifað undir plötusamning við þýska útgáfurisann Nuclear Blast. 16. janúar 2019 11:46