Lífið

Litla föndurhornið: Skipt um lit á jólaskrautinu

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Jólaföndur 16.desember frá Kristbjörgu Ólafsdóttur.
Jólaföndur 16.desember frá Kristbjörgu Ólafsdóttur. Vísir/Kristbjörg

Kristbjörg Ólafsdóttir sér um Litla föndurhornið, vikulegan lið hér á Vísi. Í desember ætlar hún að deila einu jólaföndri á dag með lesendum Vísis alveg fram að jólum. Í dag 16. desember sýnir hún hvernig hægt er að breyta jólaskrautinu sem maður á, í stað þess að stökkva út og kaupa nýtt. Við gefum Kristbjörgu orðið.

Ef jólaskrautið passar ekki, breyttu því.

Ég veit að þið getið ekki trúað því hversu oft ég hef óskað þess að Bandarísku dollarabúðirnar væru með útibú hérna. Úrvalið sem þær eru með er geggjað og þær eru gjörsamlega draumaveröld föndrarans. Fyrir síðustu jól þá voru þær með virkilega fallegar jólakúlur, hvítar og með smá grein og skrauti að ofan. Ég leitaði og leitaði í búðunum hérna, fann að vísu margt annað en ekki þessar hvítu fallegu jólakúlur. Ég fann hins vegar kúlur sem voru mjög líkar og ákvað að breyta þeim.

Ég byrjaði á því að taka skrautið að ofan, það var ekki beint auðvelt en tókst án þess að ég skemmdi það eða kúluna. 

Svo þreif ég allt þetta auka glimmer dót af áður en ég spreyjaði kúluna hvíta.

Ég átti bara matt spray þannig að til að fá glansinn þá fór ég yfir kúluna með límlakkinu mínu. Svo límdi ég skreytingarnar aftur á og var komin með kúlu mjög svipaða þeim sem dollarabúðirnar voru með.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.