Það hefur sett skemmtilegan blæ á bandarísku körfuboltasenuna og margir reka upp stór augu þegar þeir sjá skrautlegt skótau NBA-liða í upphafi leiktíðarinnar. Það að skærustu stjörnur NBA geti nú klæðst æpandi litum og skræpóttu munstri eftir eigin höfði á vafalaust eftir að hafa áhrif á gjörvallan tískuheiminn og aðdáendur sportsins um heim allan.
Galopnar skóskápinn
Það var framherjinn PJ Tucker hjá Houston Rockets sem hleypti þessari nýjung óformlega af stað því hann hefur á undanförnum árum glatt bæði áhorfendur og leikmenn með því að mæta til leiks í fágætum og litríkum Nike-skóm. Tucker hefur verið samningsbundinn Nike allan sinn leikferil en losnaði undan samningnum 1. október síðastliðinn.Önnur íþróttavörumerki slást nú um að fá PJ Tucker til liðs við sig en hann hefur tekið ákvörðun um að njóta þess að vera samningslaus næstu mánuði til að geta klætt sig í hvaða skó sem er.

Ekki alltaf í sömu skónum
Skósafn Tuckers geymir þúsundir skópara í stærðinni 47.„Ég hef aldrei viljað spila í einni merkjavöru og vil það ekki enn. Ég vil ekki vera alltaf í sömu skónum og hef þörf fyrir fjölbreytileika. Það er alveg möguleiki að spila alla leiktíðina án samnings og mér þætti það sko alls ekki leiðinlegt. Ég verð heldur pottþétt ekki uppiskroppa með skó!“ sagði Tucker hinn kátasti.
Í fyrstu leikviku NBA á dögunum mætti Tucker í bleikum og grænum Vans-strigaskóm en með gamla, rauða Kobe Bryant-skó frá Adidas til vara. Á heimavelli gegn New Orleans steig hann inn á völlinn í nýjum ólífugrænum og svörtum Jordan 6 Retro Travis Scott-skóm með Cactus Jack-þema. „Ég bara varð að mæta í Travis 6 áður en einhver annar gerði það,“ sagði Tucker fyrir leikinn.
Hann leitar logandi ljósi að nýjum og gömlum körfuboltaskóm hvert sem hann fer.
„Í stað þess að mega bara klæðast Nike get ég nú klætt mig í hvaða skó sem er. Ég gat loksins farið út í Pharrell N.E.R.D. frá Adidas um daginn og þeir eru svakalegir. Einir af mínum uppáhalds.“