Konungurinn rak sex „einstaklega illa“ starfsmenn Samúel Karl Ólason skrifar 23. október 2019 15:42 Mynd af Maha Vajiralongkorn, konungi Taílands. EPA/NARONG SANGNAK
Maha Vajiralongkorn, konungur Taílands, hefur rekið sex starfsmenn sína nokkrum dögum eftir að hann svipti opinbera frillu sína öllum hennar titlum. Í tilkynningu frá konungnum segir að fólkið hafi verið rekið vegna alvarlegra agabrota þeirra og hegðunar sem skilgreind er sem „einstaklega ill“.Hópurinn inniheldur meðal annars háttsettan yfirmann lögreglunnar og tvo lífverði konungsins. Brottrekstur þeirra hefur ekki verið tengdur við útskúfun frillu konungsins. Sineenat Wongvajirapakdi var svipt titlum hennar sem opinber frilla konungsins á dögunum. Í yfirlýsingu frá skrifstofu konungsins í fyrradag segir að Sineenat hafi verið refsað fyrir að reyna að setja sig á sama stall og drottningin. Var sagt að hún hafi ekki sýnt næga hollustu, hún hafi verið óþakklát og metnaðargjörn.Sjá einnig: Frilla konungs Taílands fallin í ónáðEkki er vitað hvar hún er stödd í dag. Frá því Vajiralongkorn settist í hásætið árið 2016 hefur hann í raun nýtt völd konungsins meira en áður hefur verið gert. Meðal annars hefur hann tekið yfir stjórn umfangsmikils auðs konungsfjölskyldunnar og fært herdeildir hers Taílands undir eigin stjórn. Það er ólöglegt að gagnrýna konungsfjölskyldu Taílands og er mögulegt að dæma fólk í fimmtán ára fangelsi fyrir slík brot.
Taíland Mest lesið Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Fleiri fréttir „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Sjá meira