Lífið

„Fólk hefur verið óvant því að konur þori að taka pláss“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Vala Kristín tekur pláss í leiklistarsenunni hér á landi og stendur sig með prýði.
Vala Kristín tekur pláss í leiklistarsenunni hér á landi og stendur sig með prýði. vísir/vilhelm
Vala Kristín Eiríksdóttir er ung og efnileg leikkona sem hefur vakið mikla athygli undanfarin ár fyrir flotta frammistöðu í leiklistarsenunni hér á landi. Vala er gestur vikunnar í Einkalífinu.

Vala vakti fyrst athygli þegar hún kom fram í þáttunum Þær Tvær á Stöð 2 og í framhaldinu af því fór hún af stað með þættina Venjulegt fólk en hún samdi handritið ásamt þeim Júlíönu Söru Gunnarsdóttur, Fannari Sveinssyni, Halldóri Halldórssyni og Glassriver framleiðir.

Stundum hefur verið einkennilega umræða í samfélaginu þar sem sumir vilja halda því fram að karlmenn séu fyndnari en konur. Vala segir að sú umræða eigi sannarlega ekki rétt á sér.

„Fyrir mér var Helga Braga í Fóstbræðrum hugmynd manns um fyndnar konur á sínum tíma. Ég veit ekki hvaða rugl þetta er. Ég get ekki ímyndað mér það að nokkur manneskja sé sannfærð um það að það séu ekki til fyndnar konur. Ég hef aldrei heyrt neinn segja að konur séu ekki fyndnar. Maður finnur samt alveg fyrir því í viðtölum og svona að það sé tekið út fyrir sviga að maður sé kona. Ég held að spurningarnar komi frá góðum stað og ég held að þær komi frá því að það hefur verið þannig í kúltúrnum síðustu aldir að menn taki meira pláss yfir höfuð.“

Hún segir einnig hugmyndir kynjanna vera oft á tíðum mjög einkennilegar.

„Ef þú ert fáránlegur, ljótur eða asnalegur þá dregur það úr kvenleika þínum. Það dregur ekkert endilega úr karlmennsku þinni að vera flippaður. Þá ert þú kannski bara hugrakkur en ef þú er kona þá ertu bara fáránleg. Þetta er sambland af hugmyndum okkar um hlutverk kynjanna. Fólk hefur verið óvant því að konur þori að taka pláss.“

Í þættinum ræðir Vala einnig um æskuna, leikhúsið, baráttu sína við kvíða, þunglyndi og átröskun og hvort það sé erfiðara að leika grína eða drama, framtíðina og margt fleira.


Tengdar fréttir

Drakk frá mér alla ábyrgð

Ingólfur Þórarinsson hefur verið einn vinsælasti tónlistarmaður landsins síðastliðinn fimmtán ár. Ingó er gestur vikunnar í Einkalífinu en í þættinum fer söngvarinn um víðan völl og kemur inn á það að hann hafi ekki drukkið áfengi í sjö mánuði.

„Var kannski aðeins meðvirk með ástandinu“

Sjónvarpskonan Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir hefur verið á sjónvarpsskjáum landsmanna undanfarin ár og þá aðallega sem sjónvarpskokkur. Núna er Eva orðin dagskrágerðarmaður í þættinum Íslandi í dag á Stöð 2.

Enginn beðið mig afsökunar

"Þú þarft ekki að svara þessu en ég vildi bara segja þér að ég er ekki að fara kjósa þig. Ég ekki að reyna vera dónaleg en mér finnst bara kjánalegt að þú sért að taka þátt í keppni fyrir íslenskar stelpur!“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.