Leicester skoraði níu gegn Southampton Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. október 2019 20:45 Vardy og Pérez skoruðu báðir þrennu. vísir/getty Leicester City vann 0-9 útisigur á Southampton í fyrsta leik 10. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar. Með sigrinum komust Refirnir upp í 2. sæti deildarinnar. Ayoze Pérez og Jamie Vardy skoruðu báðir þrennu í leiknum. Leicester jafnaði þarna stærsta sigur í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Manchester United hafði átt metið frá 1995 þegar liðið vann Ipswich Town, 9-0.9 - Leicester have recorded the joint-biggest margin of victory in Premier League history, alongside Manchester United’s 9-0 win over Ipswich at Old Trafford in March 1995. Conquering. pic.twitter.com/jdkE6JIhju — OptaJoe (@OptaJoe) October 25, 2019 Þetta var einnig stærsti útisigur liðs í sögu efstu deildar á Englandi.- Leicester City (@LCFC) win 9-0 at Southampton, the biggest away win EVER in the English top flight. #SOULEI#LCFC — Gracenote Live (@GracenoteLive) October 25, 2019 Þetta var jafnframt stærsti sigur Leicester í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Hins vegar var þetta stærsta tap Southampton í sögu félagsins. Ben Chilwell kom Leicester yfir á 10. mínútu. Ryan Bertrand, fyrirliði Southampton, fékk rautt spjald fyrir ljótt brot á Pérez í aðdraganda marksins. Hann er fyrsti leikmaðurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar sem er rekinn af velli með hjálp myndbandsdómgæslu. Á 17. mínútu kom Youri Tilemans Leicester í 0-2 og aðeins tveimur mínútum síðar lagði hann upp marki fyrir Pérez. Spánverjinn skoraði aftur á 39. mínútu og Jamie Vardy kom gestunum frá Leicester svo í 0-5 á lokamínútu fyrri hálfleiks. Þetta er aðeins í annað sinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar sem lið er fimm mörkum yfir á útivelli í hálfleik. Manchester City afrekaði það einnig gegn Burnley í apríl 2010.5 - Leicester are only the second team in Premier League history to establish a five-goal lead in the first half of an away game, after Manchester City against Burnley in April 2010 (5-0). Invaders. pic.twitter.com/U25V0XaoY7 — OptaJoe (@OptaJoe) October 25, 2019 Perez skoraði sitt þriðja mark og sjötta mark Leicester á 57. mínútu eftir sendingu frá Harvey Barnes. Vardy skoraði svo sjöunda mark Leicester aðeins mínútu síðar. James Maddison skoraði áttunda mark Leicester með skoti beint úr aukaspyrnu fimm mínútum fyrir leikslok og í uppbótartíma skoraði Vardy það níunda úr vítaspyrnu. Lokatölur 0-9, Leicester í vil. Southampton, sem hefur ekki unnið í fimm leikjum í röð, er í 18. sæti deildarinnar með aðeins átta stig. Enski boltinn
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti