Lífið

Elli krani kom fyrir risastórum glugga í húsi Gísla og Nínu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Elli krani hefur starfað í bransanum í 15 ár. Hann getur nánast allt.
Elli krani hefur starfað í bransanum í 15 ár. Hann getur nánast allt.
Leikarahjónin Gísli Örn Garðarsson og Nína Dögg Filippusdóttir tóku þá ákvörðun á árinu að taka hús sitt við Nesveginn á Seltjarnarnesinu alfarið í gegn frá a-ö.

Gulli Byggir fylgist með verkefninu á Stöð 2 og var annar þátturinn um framkvæmdirnar á dagskrá Stöðvar 2 í gær. Hjónin hafa búið í húsinu í fjögur ár en urðu að flytja út úr því á meðan framkvæmdunum stendur.

Þegar framkvæmdir hófust var búið að endurhanna húsið og gera nýjar teikningar. Eitt af því sem átti að gera var að stækka húsið í áttina að sjónum og koma einnig fyrir risastórum glugga sem er um fimm metrar á breidd og yfir tvo metra á hæð. Áætlun sem engum leist í raun vel á þar sem veðráttan er ekki alltaf nægilega góð svona upp við sjó.

Í þætti gærkvöldsins var komið að því að koma þessu risastóra glugga fyrir í húsi þeirra hjóna. Glugginn er fimm metrar á breidd og um 2,5 metrar á hæð og stendur við sjóinn úti á Nesi. Það voru ekki margir sem ráðlögðu þeim hjónum að koma svona stóru gleri fyrir á þessum stað þar sem veðráttan getur verið nokkuð slæm svona upp við sjóinn. Það heppnaðist aftur á móti að koma honum fyrir og var það sjálfur Elli krani sem stjórnaði aðgerðum við Nesveginn. Hér að neðan má sjá hvernig til tókst.

Gísli og Nína náðu ekki að klára framkvæmdirnar fyrir þáttinn. Til að byrja með áttu þær að taka þrjá mánuði en þegar seinni þátturinn var tekinn upp fyrr í þessum mánuði höfðu liðið átta mánuðir. Þetta var síðasti þátturinn í seríunni af Gulla Byggir og þurfa því áhorfendur Stöðvar 2 að bíða fram á næsta vor til að sjá loka útkomuna, ef það tekst.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.