„Ég var að vinna úti í Mílanó eftir að ég útskrifaðist en flutti heim 1994. Síðan þá hef ég unnið sjálfstætt við að teikna fyrir fólk,“ segir Ragnheiður. Hún segir ekki mikið hafa breyst í eldhúsum síðan hún byrjaði að hann
„Það eru til dæmis miklar tískusveiflur í hvort fólk vilji höldur, grip eða þrýstiopnun og það hefur orðið mikil framför í öllu innvolsi, skúffubrautum og fylgihlutum fyrir eldhús. Eins er fólk farið að nota granít og marmara í borðplötur meira en áður og fólk spáir meira í lýsingu. En í grunninn hefur samt ekki mikið breyst.“
Ragnheiður segir að þegar eldhús eru hönnuð sé mikilvægt að spá í vinnuplássið. Það þarf að vera þægilegt að vinna í eldhúsinu, gott aðgengi og flæði svo allt virki vel saman. „En svo hef ég alltaf efst í huga hvað eigandinn vill fá út úr eldhúsinu. Það er svo misjafnt hvernig eldhús fólk vill hafa, hvernig vinnuaðstæður og hvernig útlit. Ég vinn algjörlega með eigandanum.“

Eldhúsin í Fossvoginum eru bæði opin eldhús. Opin eldhús hafa notið aukinna vinsælda undanfarin ár og Ragnheiður segir að þau séu langalgengust í nýju húsnæði í dag. „ Fólk er líka að opna gömlu eldhúsin. Eldhúsið er hjarta heimilisins og það er gott að tengja eldhús og borðstofu saman.

Ragnheiður segir að henni finnist alveg jafn gaman að teikna eldhús fyrir ný hús og gömul. „Það er auðvitað ólíkt að vera með rými þar sem er innrétting fyrir og rými sem maður getur hannað alveg frá grunni, en það er bæði skemmtilegt. Mér finnst gaman að taka þátt í að skapa þetta rými á heimilum fólks.“



