Ótrúleg endurkoma Arsenal gegn nýliðunum Anton Ingi Leifsson skrifar 22. september 2019 17:30 Pierre-Emerick Aubameyang fagnar sigurmarkinu. vísir/getty Arsenal náði í afar mikilvæg þrjú stig er liðið vann 3-2 sigur á Aston Villa á heimavelli og náði því að koma til baka eftir vonbrigðin gegn Watford um síðustu helgi. Gestirnir og nýliðarnir komust yfir á 20. mínútu er John McGinn kom boltanum í netið eftir fyrirgjöf frá Anwar El Ghazi en varnarleikur Arsenal var ekki upp á marga fiska. Ainsley Maitland-Niles fékk gult spjald á 11. mínútu og aftur fékk hann gula spjaldið á þeirri 41. mínútu. Þar með var hann sendur í sturtu. 1-0 fyrir Villa í hálfleik. Arsenal fékk vítaspyrnu eftir stundarfjórðung í síðari hálfleik og á punktinn steig Nicolas Pepe. Hann kom boltanum í netið en einungis mínútu síðar kom Wesley nýliðunum yfir á nýjan leik. Calum Chambers jafnaði þó fyrir Arsenal níu mínútum fyrir leikslok og sex mínútum fyrir leikslok var það Pierre-Emerick Aubameyang sem fullkomnaði endurkomu Arsenal.This man right here #ARSAVLpic.twitter.com/kh4NaiHWel— Arsenal (@Arsenal) September 22, 2019 Arsenal er í 4. sæti deildarinarn með ellefu stig, tveimur stigum á eftir Man. City sem er í öðru sætinu, en Aston Villa er í 18. sætinu með fjögur stig. Enski boltinn
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti