Leikjavísir

GameTíví spilar Control

Samúel Karl Ólason skrifar
Þeir Óli og Tryggvi í GameTíví eru loksins mættir úr sumarfríi og eru byrjaðir að hella sér aftur í tölvuleikina, ef svo má að orði komast. Fyrsti leikurinn sem þeir skoða á þessum vetri er leikurinn Control. Hann er gerður af finnska fyrirtækinu Remedy Entertainment en það inniheldur sömu aðila og gerðu fyrstu Max Payne leikina og er svipur með leikjunum.

Þó Óli hafi klárað leikinn, segist hann ekki alveg viss um hvað leikurinn fjallaði um. Hann segir leikinn þó vera mjög góðan.

Hægt er að fylgjast með Óla spila sig í gegnum eitt borð leiksins hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.