„Mig hafði lengi dreymt um að sjá hann á sviði þannig að ósk mín var að rætast. Með gjöfinni fylgdi mynd af mér og Ed sem eiginmaðurinn hafði haft fyrir að fótósjoppa. Sagan er reyndar hálfsögð því ég gleymdi að opna þennan pakka og var farin að taka til eftir pakkaflóðið með sópinn í hendinni þegar gjöfin uppgötvaðist. Ég fór bara að gráta með kústinn upp við öxlina,“ segir Hafrún og skellihlær þegar hún rifjar þetta upp.

Með stjörnuna í návígi
„Það eru ekki til nein orð sem lýsa því nógu vel hversu geggjaðir þessir tónleikar voru, fóru langt fram úr væntingum. Þeir fóru fram í stórum garði, Phoenix Park, í Dyflinni. Við mættum snemma, upp úr eitt eftir hádegi en svæðið var ekki opnað fyrr en klukkan hálf fimm. Við settumst bara niður og höfðum það notalegt í rosalega góðu veðri,“ útskýrir hún. „Reyndar vissum við ekki þá að þeir sem myndu mæta fyrstir á svæðið fengju besta staðinn fyrir framan sviðið. Fimm hundruð manns komust þangað og þar á meðal við.“Hafrún segir að eiginmanninum, Birni Albertssyni, hafi ekki litist á blikuna fremst við sviðið. Vildi helst ekki taka pláss frá öllum unglingsstelpunum. „En við vorum þarna allt til enda. Fórum hvorki á salerni né að kaupa bjór. Satt að segja var hver einasta mínúta dásamleg. Á tónleikunum voru um 60 þúsund manns. Það voru þrennir tónleikar í Dyflinni og sami fjöldi á þeim öllum,“ upplýsir Hafrún.

Allir sungu með
Þeir sem komu fram með Ed á tónleikunum voru hin vinsæla Anne-Marie, Jamie Lawson og Beoga. Hafrún segir að upphitunin hafi því einnig verið stórkostleg. „Það var geggjað að sjá Anne-Marie. Hún er stórkostleg söngkona. Flutti meðal annars hið vinsæla lag Rockabye. Um leið og tónleikarnir hófust með upphitun fór fjörið í gang og ótrúleg stemming strax meðal áhorfenda. Allt gekk ótrúlega vel fyrir sig. Ed sjálfur var alveg á réttum tíma og ég minnist þess ekki að hann hafi tekið nokkra pásu. Eiginlega trylltist allt þegar hann mætti. Það er svo stórkostlegt að sjá manninn einan á sviðinu allan þennan tíma og hann hélt áhorfendum heilluðum allan tímann. Ég held að hver einasti maður á svæðinu hafi sungið með honum, allir kunnu textana og lögin. Ég fæ enn gæsahúð yfir því hvað þetta var æðislegt og hlakka rosalega til að sjá hann aftur,“ segir Hafrún og er greinilega orðin mjög spennt. „Ég er samt búin að lofa manninum mínum að standa ekki upp við sviðið að þessu sinni,“ bætir hún við í gamansömum tón. Hafrún segist hafa verið með þeim fyrstu sem keyptu miða á tónleikana á Laugardalsvelli. „Ég hefði getað fengið miða í stúkunni en langaði frekar að geta hreyft mig og labbað um.“Magnaður á sviði
Ed Sheeran hefur lengi verið í miklu uppáhaldi hjá Hafrúnu og hún segir að það hafi fyrst og fremst verið lögin hans sem heilluðu. „Ég þekki öll lögin og finnst þau æðisleg. Sum lög sem maður tekur ekkert sérstaklega eftir á Spotify verða mögnuð þegar hann flytur þau á sviðinu. Hann skiptir um gítar eftir hvert lag og það er mjög gaman að fylgjast með honum á sviðinu.“Hafrún hafði ekki áður farið á tónleika erlendis en hún hefur séð nokkrar þekktar hljómsveitar hér á landi, meðal annarra Duran Duran. „Mig hefði langað til að sjá Adele en hún hefur ekki verið með tónleika lengi. Núna hugsa ég bara um Ed Sheeran tónleikana í kvöld. Þeir sem eru með miða eiga eftir að fá stórkostlega og ógleymanlega upplifun. Maðurinn minn var ekkert spenntur fyrir Ed áður en við fórum til Dyflinnar en núna hlakkar hann líka mikið til. Þetta er rosalegt „show“ og algjörlega einstakt,“ segir Hafrún sem hefur alltaf verið mikill tónlistarunnandi.
