Ekkert til í því að Stjarnan sé að semja við Amin Stevens Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. júlí 2019 10:30 Amin Stevens var illviðráðanlegur í íslensku deildinni. vísir/ernir
Amin Stevens átti að vera á leiðinni til Stjörnunnar fyrir komandi tímabil í Domino´s deild karla í körfubolta samkvæmt kjaftasögum í íslenska körfuboltaheiminum en innanbúðarmenn í Garðabænum kannast ekkert við það. Hilmar Júlíusson, formaður Körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar, segir ekkert til í þeim sögum að félagið sé að semja við bandaríska miðherjann Amin Stevens. „Hann er ekki á leiðinni til Stjörnunnar,“ staðfesti Hilmar við Vísi í morgun. Stjörnumenn eru enn að leita sér að nýjum bandarískum leikmanni fyrir komandi tímabil. Það er ljóst að það væri stórfrétt ef deildar- og bikarmeistararnir væru að fá svo öflugan leikmann til sín eða að einhverju öðru íslensku félagi tækist að fá þennan 200 sentímetra kappa aftur í íslensku deildina. Amin Khalil Stevens hefur spilað eitt tímabil í Domino´s deildinni og var þá valinn besti erlendi leikmaður deildarinnar. Stevens var með 28,6 stig og 16,0 fráköst að meðaltali með Keflavíkurliðinu veturinn 2016 til 2017. Hann var efstur á Íslandsmótinu í stigum í leik, fráköstum í leik og framlagi í leik. Stevens hefur síðan spilað með Rouen í Frakklandi (2017-18) og Brussels í Belgíu (2018-19). Amin Stevens var með 13,6 stig og 7,4 fráköst að meðaltali í Belgíu en 18,1 stig og 9,1 frákst að meðaltali í b-deildinni í Frakklandi.
Dominos-deild karla Mest lesið Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Fótbolti Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Fleiri fréttir Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Sjá meira