Íslenski boltinn

Kolbeinn með Fylki út júlí

Anton Ingi Leifsson skrifar
Kolbeinn Birgir Finnsson.
Kolbeinn Birgir Finnsson. vísir/vilhelm
Kolbeinn Birgir Finnsson, leikmaður Fylkis, mun spila áfram með Árbæjarliðsinu út júlímánuð en þetta var staðfest í dag.

Helgi Sigurðsson, þjálfari Fylkis, staðfesti þetta í samtali við Vísi nú undir kvöld og segir Helgi að þetta sé mikið fagnaðarefni.

Kolbeinn kom á láni frá Fylki í byrjun maí en í fyrstu var reiknað með að hann yrði bara hjá félaginu út júní.

Eftir viðræður við Brentford, félagið sem á Kolbein, komust liðin að samkomulagi að Kolbeinn taki júlímánuð einnig með Fylkismönnum.

Fylkir vann frábæran sigur á KA í síðustu umferð í Pepsi Max-deildinni og er í sjötta sæti delidarinnar með fimmtán stig.

Liðið mætir ÍA á laugardag á Akranesi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×