Iðin við að skapa verkefni Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar 17. júní 2019 09:00 „Þetta er mikill heiður,“ segir Ingibjörg um viðurkenninguna. fbl/anton brink
Ingibjörg Elsa Turchi, bassaleikari og tónsmiður, hlaut síðastliðinn sunnudag viðurkenningu úr Minningarsjóði Kristjáns Eldjárns gítarleikara. Minningarsjóðurinn var stofnaður af ættingjum, vinum og samstarfsmönnum eftir að hann lést árið 2002 tæplega þrítugur að aldri. Minningarsjóðnum er ætlað að verðlauna efnilega tónlistarmenn og afreksfólk í tónlist. „Þetta kom mér á óvart og er mikill heiður. Það er frábært að hafa orðið fyrir valinu og gerir mér kleift að vinna markvisst að mínum næstu verkefnum,“ segir Ingibjörg sem er þrítug og hefur undanfarin ár verið gríðarlega afkastamikil í íslensku tónlistarlífi. Verkefnin sem hún hefur tekið þátt í eru fjölbreytt og mætti þar helst nefna samstarf við Stuðmenn, Bubba Morthens, Teit Magnússon og Soffíu Björgu. Hún var meðlimur í hljómsveitinni sem flutti tónlistina í Ronju ræningjadóttur í Þjóðleikhúsinu og hefur komið fram með hljómsveit sem flytur hennar eigið efni og tekið þátt í myndlistarsýningum og ýmsum grasrótartengdum verkefnum.Heillaðist af bassanum „Þetta byrjaði allt saman þegar ég var í hljómsveitinni Rökkurró í MR og hefur þróast síðan þá. Ég hef verið dugleg að stökkva á tækifæri sem hafa boðist og spilað með öðrum tónlistarmönnum allt frá upphafi og margt hefur einnig komið upp í hendurnar á mér. Ég hef líka verið iðin við að skapa mér ýmis verkefni sjálf með frábæru tónlistarfólki,“ segir Ingibjörg. Hún lærði sem barn og unglingur á flautu, harmóniku, gítar og píanó en kynntist síðan bassanum og lærði síðar í FÍH. „Mig langaði til að prófa bassann og heillaðist af honum, mér fannst hann smellpassa við mig. Þetta er hljóðfæri með marga möguleika og það er hægt að gera svo mikið við það.“ Ingibjörg sinnir kennslu og umsjón í samtökunum Stelpur rokka! og hefur verið frá stofnun þess hér á landi árið 2012. „Tilgangurinn var að reyna meðal annars að jafna kynjahallann í tónlistarheiminum. Þar hafa fyrirmyndirnar ekki oft verið sýnilegar og þá finnst stelpum eins og þær eigi ekki erindi og geti ekki fengið hljómgrunn. Það eru sjö ár síðan Stelpur rokka! varð til og starfið hefur vaxið mjög mikið á þessum árum sem er frábært.Stefnir á plötu Árið 2017 gaf Ingibjörg út plötuna Wood/work sem kom út á vegum SMIT-records. Einnig er hún að læra tónsmíðar í Listaháskóla Íslands. „Ég stefni á að klára námið næsta vor og er líka í rytmísku kennaranámi samhliða, svo ætla ég að halda áfram að þróa efnið mitt, gera plötu og halda tónleika.“ Ingibjörg er með BA-próf í latínu og forngrísku frá Háskóla Íslands. „Ég var á fornmálabraut í MR og þar sem tungumál liggja vel fyrir mér og mér þykja þau skemmtileg ákvað ég að læra meira. Eftir námið kenndi ég grísku í MR og hef fengist við þýðingar. Gríska heimspekin hefur heillað mig og svo hef ég verið að stúdera forngríska tónlist. Nú er það samt eigin tónlist og tónlistarflutningur sem á hug minn allan.“
Tónlist Mest lesið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Hvað veistu um… London? Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Lífið Fleiri fréttir HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Miley losar sig við eftirnafnið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Highway 61 Revisited fagnar 61 árs afmæli Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Sísí Ey snýr aftur eftir tíu ára fjarveru Myndaveisla: Leynigestir og innlifun á stórafmælistónleikunum Lag sem enginn söng á toppnum í Ástralíu Versace-ást Villa Vill kveikjan að lagi og skúlptúr Fór á fimm tónleika Ariönu Grande á viku Dimma búin að fylla í skarð Stebba Jak Gestafjöldi fjórfaldaðist á Kveldúlfi Kanye treður upp í Rússlandi Hip-hop sveitin Tha Alkaholiks í Iðnó í október Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Hátíðin Kveldúlfur í annað sinn um helgina Heiður að endurvekja falda perlu Palla Eurovision haldið í Burgas í Búlgaríu Suki dásamar Laufeyju Konan sem malaði Stebba og Eyfa á leið til landsins Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð „Þetta er ólýsanleg tilfinning“ Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Sjá meira