Lífið

Fá­klæddur Ís­lands­vinur truflaði úr­slita­leik Meistara­deildarinnar

Andri Eysteinsson skrifar
Harry Winks og Kinsey Wolanski í Madríd í kvöld.
Harry Winks og Kinsey Wolanski í Madríd í kvöld. Getty/Chloe Knott
Þessa stundina stendur yfir úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu 2019 í Madríd á Spáni, þar eigast við ensku liðin Liverpool og Tottenham. Leikurinn hófst með látum en Mohamed Salah kom hinum rauðklæddu yfir stuttu eftir að flautað hafði verið til leiks.

Annað atvik í fyrri hálfleiknum vakti athygli en stöðva þurfti leikinn þegar að fáklædd instagram-stjarna hljóp inn á leikvöllinn með öryggisverði á hælunum. Konan, sem talin er vera instagramstjarnan Kinsey Wolanski var klædd í efnislítinn svartan fatnað merktan vefsíðu sem rakin er til kærasta Wolanski, YouTube prakkarans, Vitaly Zdorovetskiy.

Um 479 þúsund manns fylgja Wolanski á Instagram og á síðu hennar má sjá myndir af henni um allan heim, meðal annars frá Íslandsför hennar sem virðist hafa verið farin í júní á síðasta ári.

Wolanski var að lokum stöðvuð af öryggisvörðum og henni fylgt af leikvellinum. Kærasti Wolanski, áðurnefndur Vitaly hefur áður staðið fyrir vitleysu sem þessari, 2016 var hann handtekinn fyrir að hafa komið sér inn á leikvöllinn á meðan á fjórða leik í úrslitaviðureign NBA deildarinnar milli Golden State Warriors og Cleveland Cavaliers. Sama var uppi á teningunum í úrslitaviðureign MLB deildarinnar ári síðar.

Það var þó ekki hans þekktasta prakkarastrik en í úrslitaleik HM í Brasilíu árið 2014 hljóp Vitaly þessi inn á leikvöllinn og truflaði þar, rétt eins og kærastan Wolanski gerði fyrr í kvöld.

Hér sést Kinsey Wolanski auk kærastans, YouTube prakkarans, Vitaly ZdorovetskiyGetty/Michael Tulliberg





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.