Guedes tryggði Portúgölum Þjóðadeildarititlinn Arnar Geir Halldórsson skrifar 9. júní 2019 20:30 Enn einn titilinn í safn Cristiano Ronaldo vísir/getty Portúgal er fyrsta þjóðin til að vinna Þjóðadeildina í fótbolta en þetta varð ljóst eftir 1-0 sigur Portúgals á Hollendingum á Drekavöllum í Porto í dag. Fyrri hálfleikur var afar bragðdaufur þó heimamenn hafi verið sterkari aðilinn. Ekkert alvöru færi leit dagsins ljós og staðan í leikhléi markalaus. Eftir klukkutíma leik áttu Portúgalar góða sókn upp vinstri kantinn sem hafnaði hjá Goncalo Guedes í góðu skotfæri rétt utan vítateigs. Hann lét vaða á markið og kom Jasper Cillesen ekki vörnum við þrátt fyrir að hafa hendur á boltanum. Reyndist þetta eina mark leiksins og önnur meistaratignin í skaut Portúgala staðreynd en þeir eru einnig ríkjandi Evrópumeistarar eftir að hafa unnið EM í Frakklandi árið 2016. Portúgal Þjóðadeild UEFA
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti