Jón: Langar að spila meira Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 4. maí 2019 23:21 Jón Arnór fagnaði vel og innilega í leikslok vísir/daníel
Jón Arnór Stefánsson langar að spila körfubolta áfram eftir að hafa hjálpað KR til sjötta Íslandsmeistaratitilsins í röð með sigri á ÍR í oddaleik í DHL höllinni í kvöld. KR vann leikinn 98-70 og seríuna því 3-2 og er Íslandsmeistari. Hvað fannst Jóni hafa skilað sigrinum? „Reynsla. Við höfum verið hérna áður, okkur leið vel og það eru mikil gæði í þessu liði,“ sagði Jón í leikslok. Hinir fjórir leikirnir í seríunni enduðu nokkuð jafnir en það var engin spurning hvernig þessi færi. „Við erum betra lið en ÍR. Við sýndum það ekki í seríunni. Við vorum óheppnir með fyrsta og þriðja leikinn, unnum útileikina nokkuð sannfærandi og vorum svo mjög sannfærandi í dag. Ég held það hefði ekki neitt getað stoppað okkur í dag.“ KR lenti í fimmta sæti í deildinni og á leið sinni í úrslitin lagði KR liðin sem lentu í fjórða og sjötta sæti. Í úrslitum mættu þeir liðinu sem lentu í sjöunda sæti. Einhverjir gætu gagnrýnt KR-inga fyrir að hafa farið auðvelda leið að titlinum en Jón gaf ekki mikið fyrir það. „Það er bara fáránleg fullyrðing. Þú ferð ekki auðvelda leið að neinum titli, við þurftum að hafa fyrir þessu.“ „Við bara kláruðum okkar, við unnum vinnuna okkar, sem aðrir gerðu ekki. Munurinn er þar.“ Jón Arnór verður 37 ára gamall á þessu ári. Var þetta síðasta tímabil hans? „Ég veit það ekki. Það bara kemur í ljós. Það er rosalega erfitt að kveðja þennan leik. Þetta er ekki eitthvað sem maður á að draga á langinn en mig langar að spila meira,“ sagði Jón Arnór Stefánsson.
Dominos-deild karla Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira