Pálmi Gunnarsson bæjarlistamaður Akureyrar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 26. apríl 2019 10:16 Pálmi Gunnarsson gæti verið að syngja Þorparann á þessari mynd. Lilja Guðmundsdóttir
Í gær var tilkynnt á Vorkomu stjórnar Akureyrarstofu um val á bæjarlistamanni Akureyrar 2019-2020 og varð tónlistarmaðurinn, rithöfundurinn og kvikmyndagerðarmaðurinn Pálmi Gunnarsson þess heiðurs aðnjótandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akureyrarbæ. „Pálmi á að baki langan starfsferil og fyrir löngu orðinn landsþekktur listamaður sem söng sig inn í hjörtu þjóðarinnar fyrir hartnær hálfri öld. Pálmi ætlar að einbeita sér að tveimur verkefnum á starfslaunatímanum. Fyrra verkefnið er sjónvarpsþáttaröð um tónlistartengt efni þar sem markmiðið er að gefa áhorfendum innsýn í þann fjölbreytta hóp fólks sem tengist tónlistarsköpun með einum eða öðrum hætti. Síðara verkefnið er skáldsaga sem ber vinnuheitið Lennon, sagan byggir á stuttmyndahandriti sem Pálmi vann fyrir nokkrum árum en hefur síðan verið að þróa það í átt að skáldsögum,“ segir í tilkynningunni.Frá vinstri: Hilda Jana Gísladóttir, formaður stjórnar Akureyrarstofu, Kristján Edelstein fyrir hönd Pálma Gunnarssonar, Kristín Guðmundsdóttir fyrir hönd aðstandenda Ágústar Þórs, Valgerður H. Bjarnadóttir, Ingibjörg Auðunsdóttir fyrir hönd Zontaklúbbsins Þórunnar Hyrnu, Steinþór kári Kárason fyrir hönd Kurt og Pí ehf., Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir fyrir hönd Zontaklúbbs Akureyrar, Elínborg Loftsdóttir, Bergljót Þrastardóttir fyrir hönd AkureyrarAkademíunar, Michael Jón Clarke, Þórgnýr Dýrfjörð deildarstjóri Akureyrarstofu.María TryggvadóttirAkureyrarstofa veitir að auki heiðursviðurkenningu Menningarsjóðs og er hún veitt einstaklingum sem hafa með framlagi sínu stutt við og auðgað menningarlíf bæjarins. Í ár voru þrír einstaklingar fyrir valinu. Tónlistarmaðurinn Michael Jón Clarke, fyrir þátt sinn í öflugu tónlistar- og menningarlífi Akureyrarbæjar, Elínborg Loftsdóttir tónmenntakennari og kórstjóri fyrir mikilvægt framlag til tónlistarþátttöku og tónlistaruppeldis ungra Akureyringa.Pálmi Gunnarsson á sviði.Lilja GuðmundsdóttirÞriðja heiðursviðurkenningin er helguð minningu Ágústar Þórs Árnasonar mannréttindafrömuðar, skólamanns og listunnanda sem féll frá nýverið. Hann lagði mikið til menningar- og skólamála og lagði sig sérstaklega fram um að færa heimspeki og heimspekilega umræðu nær almenningi. Jafnframt voru veitt byggingarlistarverðlaun og féllu þau í hlut arkitektastofunnar Kurt og Pí ehf. fyrir stækkun og endurbætur á Listasafninu á Akureyri. Meginmarkmið verkefnisins voru að skapa heilsteypta listasafnsbyggingu með sýningarrýmum af bestu gerð, auk þess sem allur aðbúnaður starfsfólks sem og aðstaða fyrir umsjón og meðhöndlun listaverka var bætt. „Þetta þykir hafa tekist afar vel og unnið með virðingu úr ágætu höfundarverki Þóris Baldvinssonar og stuðlað með því að húsavernd og viðgangi góðrar byggingarlistar.“ Halla Björk Reynisdóttir, forseti bæjarstjórnar, veitti fjórar jafnréttisviðurkenningar fyrir framlag til jafnréttismála á Akureyri. Viðurkenningarnar hlutu Akureyrarakademían, Zontaklúbbur Akureyrar, Zontaklúbburinn Þórunn Hyrna og Valgerður H. Bjarnadóttir. Tónlistaratriði á Vorkomunni voru í höndum kammerkórsins Hymnodiu undir stjórn Eyþórs Inga Jónssonar organista.
Akureyri Tónlist Mest lesið Var talin vera hommi og lögð í einelti Lífið Ísland með auga fuglsins Lífið „Við munum ekki eldast saman“ Lífið Myndasyrpa úr Bakgarðshlaupinu Lífið Krakkatían: Dýrin, heimsálfur og teiknimyndir Lífið Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Tæpur helmingur íbúa hefur séð myndina Bíó og sjónvarp Aldrei litið betur út þrátt fyrir alvarlegt slys Lífið „Ég fæ morgnana til að vera bara ég“ Tónlist Fleiri fréttir Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Þarf ekkert að þvælast fyrir sjálfri sér „Smá eins og maður sé allsber fyrir framan alþjóð“ Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Sjá meira