Hátt í hundrað ára og ennþá á fleygiferð Þórarinn Þórarinsson skrifar 18. apríl 2019 09:45 Ieda Herman er á tíræðisaldri en tekur sér ýmislegt fyrir hendur sem yngra fólk veigrar við sér við.
Þetta er mynd um 93 ára ævintýrakonu sem er fædd og uppalin á Íslandi en flutti til Bandaríkjanna í kringum miðja síðustu öld,“ segir Viktoría Hermannsdóttir sem ásamt Ölmu Ómarsdóttur fylgdi Iedu Herman eftir á ferðalagi hennar um Ísland síðasta sumar. Afraksturinn má sjá í myndinni Aldrei of seint, þar sem saga Iedu er rakin en myndin verður sýnd á föstudaginn langa á RÚV. Ieda flutti til Bandaríkjanna um miðja síðustu öld eftir að hafa kynnst hér á landi bandarískum hermanni. Þrátt fyrir að hafa búið í um sjötíu ár í Bandaríkjunum hefur Ieda aldrei gleymt uppruna sínum og er dugleg við að kynna íslenskar hefðir og venjur víða um Bandaríkin, meðal annars með því að gefa út bækur um æsku sína á Íslandi og matreiðslubækur um íslenska matreiðslu ásamt dóttur sinni. Eftir áttrætt fór Ieda að stunda alls kyns ævintýramennsku og nú þegar hún er orðin 93 ára reynir hún hvað hún getur að gera allt það sem hana langar til. Þær Alma og Viktoría fylgdu Iedu eftir á ferðalagi hennar hér á landi á dögunum þar sem hún fór meðal annars í ísklifur og svifvængjaflug.Það er ótrúlegur kraftur í Iedu.Með áhuga á stríðsárunum „Þetta er mynd um 93 ára ævintýrakonu sem er fædd og uppalin á Íslandi en flutti til Bandaríkjanna í kringum miðja síðustu öld,“ segir Viktoría. „Við höfum báðar mikinn áhuga á ástandsárunum og höfum fjallað um þau. Við vorum fyrst með hugmynd um að taka viðtöl við konur sem höfðu upplifað hið svokallaða ástand. Þannig komumst við í samband við Iedu sem telst reyndar ekki til ástandskvenna en kynntist hér bandarískum hermanni sem hún giftist og flutti með honum til Bandaríkjanna,“ segir Alma. Viktoría gerði útvarpsþættina Ástandsbörn sem fjalla um börn íslenskra kvenna og hermanna. Í framhaldinu fylgdi hún eftir leit Bandaríkjamanns að hálfbróður sínum á Íslandi, en faðir hans hafði gegnt herþjónustu á Íslandi í seinni heimsstyrjöldinni. Alma gerði heimildarmyndina Stúlkurnar á Kleppjárnsreykjum, sem fjallaði um hvernig ungar stúlkur sem áttu í samskiptum við hermenn á stríðsárunum voru teknar fyrir, þær jafnvel handteknar og settar á upptökuheimili. „Þessi áhugi okkar á stríðsárunum sameinaði okkur,“ segir Alma.Ieda ásamt manni sínum.Óbilandi lífsgleði Ieda segist hafa vitað að það var stundum illa séð ef íslenskar konur áttu í sambandi við erlenda hermenn á stríðsárunum, en hún hafi sjálf ekki upplifað það. Þegar Ieda og Delbert, eiginmaður hennar til sjötíu ára, kynntust, var bandarískum hermönnum óheimilt að kvænast íslenskum konum. Ieda og Delbert voru fyrsta parið sem fékk leyfi til að giftast. „En það sem heillaði okkur við Iedu er óbilandi lífsgleði hennar og bjartsýni, og endalaus orka sem hún virðist búa yfir, þrátt fyrir að vera hátt í 100 ára,“ segir Alma. „Ieda er mjög athafnasöm og ævintýragjörn. Þau hjónin byrjuðu að kaupa og gera upp hús og selja þau aftur í kringum sjötugt. Þau gerðu upp á annan tug húsa. Eftir áttrætt fór ævintýraþráin að kitla Iedu enn meira og þá fór hún að gera alls kyns hluti sem hana hafði alltaf langað til að gera, til dæmis að fara í svifvængjaflug og klifur svo eitthvað sé nefnt,“ segir Viktoría.Ieda með þeim Ölmu og Viktoríu.Lítur á sig sem Íslending „Hún er ótrúleg ævintýrakona sem lítur svo á að hún verði að gera sem mest á þeim tíma sem hún á eftir hér á jörð,“ segir Viktoría. „Það er líka fallegt hvað tengingin við heimahagana er sterk, því þrátt fyrir að hafa búið í yfir sjötíu ár í Bandaríkjunum þá lítur hún alltaf á sig sem Íslending og heldur sterkt í íslenskar hefðir og venjur. Síðustu ár hefur hún ásamt dóttur sinni gefið út bækur um æskuna á Íslandi meðal annars. Þær ferðast víða um Bandaríkin til þess að kynna íslenskar hefðir og venjur,“ segir Alma. „Lífsgleði hennar er smitandi og það er ótrúlegur kraftur í henni,“ segir Viktoría.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Lífið Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Lífið 50+: Að hætta að vera þjónustumiðstöð fullorðinna barna Áskorun Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Lífið Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Lífið Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par Lífið Stjörnulífið: Laumugifting í helli Lífið Fleiri fréttir Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Sjá meira