Lífið

Beyoncé fékk með­­göngu­eitrun er hún gekk með tví­burana: „Líkami minn gekk í gegnum meira en ég vissi að hann gæti“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Beyoncé á Coachella í fyrra en tónleikarnir þeir fyrstu sem hún hélt eftir að hún fæddi tvíburana Rumi og Sir í júní 2017.
Beyoncé á Coachella í fyrra en tónleikarnir þeir fyrstu sem hún hélt eftir að hún fæddi tvíburana Rumi og Sir í júní 2017. vísir/getty
Tónlistarkonan Beyoncé ræðir opinskátt um seinni meðgöngu sína í nýrri heimildarmynd sem frumsýnd var á Netflix í vikunni og ber heitið Homecoming. Hún segir það hafa verið óvænt þegar hún varð ólétt og lýsir meðgöngunni sem ótrúlega erfiðri.

Í myndinni segir Beyoncé frá því að hún hafi fengið meðgöngueitrun sem lýsir sér meðal annars í háum blóðþrýstingi.

„Líkami minn gekk í gegnum meira en ég vissi að hann gæti,“ segir söngkonan í myndinni þar sem hún ræðir einnig um það hvaða áhrif meðgangan hafði á fyrirhugaða tónleika hennar á Coachella árið 2017. Homecoming fjallar einmitt um tónleika Beyoncé á Coachella á hátíðinni árið eftir.

Beyoncé segir að hún hafi komist að því að hún hafi verið ólétt í lok árs 2016.

„Ég átti að koma fram á Coachella árið 2017 en ég varð óvænt ólétt. Svo voru þetta tvíburar sem var líka mjög óvænt.“

Meðgangan var erfið og það var fæðingin sömuleiðis en þau Rumi og Sir fæddust í júní 2017. Beyoncé segir frá því að hjarta annars þeirra hafi hætt að slá nokkrum sinnum í fæðingunni svo á endanum voru tvíburarnir teknir með bráðakeisaraskurði.

Beyoncé greinir síðan frá því að það hafi verið áskorun að hefja æfingar fyrir Coachella en tónleikarnir í fyrra voru þeir fyrstu sem hún hélt eftir að tvíburarnir fæddust.

„Mikið af dansinum er tilfinning en ekki svo mikil tækni, persónuleikinn þinn er það sem glæðir dansinn lífi. Það er erfitt þegar þér líður ekki eins og þér sjálfri. Ég þurfti að byggja líkamann minn upp og það tók mig tíma að verða nógu sjálfsörugg til að gefa mig sjálfa í þetta,“ segir Beyoncé.

Hún segir að líkami sinn hafi einfaldlega ekki verið rétt tengdur til að byrja með. Þá var hugur hennar heldur ekki á staðnum.

„Í huga mínum vildi ég bara vera með börnunum mínum. Fólk sér ekki fórnirnar sem þarf að færa.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.