Lífið

Yndisleg himnasending sem kom inn í líf mitt

Stefán Árni Pálsson skrifar
Valdimar er einn besti söngvari landsins og opnar hann sig um allt og ekkert í Einkalífinu í dag.
Valdimar er einn besti söngvari landsins og opnar hann sig um allt og ekkert í Einkalífinu í dag. vísir/vilhelm
Valdimar Guðmundsson hefur í nokkur ár verið einn ástsælasti söngvari þjóðarinnar og þykir rödd hans hreinlega með ólíkindum. Valdimar er gestur í Einkalífinu í dag. Í þættinum fer Valdimar um víðan völl en hann kynntist Önnu Björk Sigurjónsdóttur á síðasta ári og eru þau í dag par.

„Þetta er bara æðisleg stelpa úr Hafnarfirðinum,“ segir Valdimar um kærustuna sem virðist hafa haft jákvæð áhrif á söngvarann.

„Hún var í raun bara yndisleg himnasending sem kemur inn í líf manns. Hún er sennilega búin að mýkja mig aðeins og maður er kannski ekki alveg jafn kaldhæðinn.“

Hann segist líta framtíðina bjartari augun eftir að hafa kynnst Önnu.

„Ég reyni alltaf að vera einlægur en maður er kannski aðeins hlýrri. Maður tekur eftir hlutum eins og ég er farinn að vilja vaska upp. Það var aldrei þannig áður og maður vill að það sé hreinna í kringum mann og maður vill vera betri í hinu og þessu. Maður vill almennt bæta sig og hún hefur þau áhrif á mann.“

Í þættinum ræðir hann einnig um ferilinn, matarfíknina, fyrirmyndirnar, leiklistarferilinn og framhaldið.

Hér að ofan má sjá fimmta þáttinn af Einkalífinu en þátturinn vikulegi er í loftinu á fimmtudögum á Vísi og Stöð 2 Maraþon.


Tengdar fréttir

Reyndist vel að lenda á milli tannanna á fólki

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er 27 ára alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Áslaug er ungur þingmaður sem hefur náð mjög langt á stuttum tíma en hún er fjórði gestur Einkalífsins á Vísi.

Kristbjörg hefur fórnað miklu fyrir mig

Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði og leikmaður Cardiff í ensku úrvalsdeildinni gaf á dögunum út bókina Aron – Sagan mín. Þar fer hann ítarlega yfir ferilinn, uppvaxtarárin á Akureyri og lífið í heild sinni.

Pabbi var mín besta forvörn

Heiðar Logi Elíasson er einn þekktasti brimbrettakappi landsins. Hann starfar meðal annars sem fyrirsæta, er með sítt, ljóst og fallegt hár og vakti athygli lesenda Vísis á dögunum þegar hann var fastur í Málmey í fjóra daga án vatns og matar.

Árin án móður sinnar í Rússlandi voru lærdómsrík

Katrín Lea Elenudóttir var krýnd Miss Universe í ágúst en hún mun taka þátt í 67. Miss Universe keppninni í Bangkok í desember. Katrín er í fullum undirbúningi fyrir keppnina og er hún þriðji gestur Einkalífsins á Vísi.

„Var kannski aðeins meðvirk með ástandinu“

Sjónvarpskonan Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir hefur verið á sjónvarpsskjáum landsmanna undanfarin ár og þá aðallega sem sjónvarpskokkur. Núna er Eva orðin dagskrágerðarmaður í þættinum Íslandi í dag á Stöð 2.

„Hún er algjörlega stelpan fyrir mig“

Gunnar Nelson er besti bardagamaður Íslands og hefur náð gríðarlega langt í sínu sporti og þá sérstaklega í UFC. Hann er í 14. sæti á styrkleikalistanum hjá UFC og mætir Alex Oliveira í Toronto þann 8. desember.

Páll Óskar ætlar alfarið að sniðganga Eurovision

"Ég fer í Eurovision þegar það kemur flott lag og ég hef ekki fengið inn lag sem kýlir mig kaldan,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson sem er áttundi gestur Einkalífsins en í þáttunum er rætt við fólk sem skarar fram úr á sínu sviði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.