Lífið

Tengdasonur Svanhildar Hólm sturlaðist á skrifstofunni þegar Rashford skoraði

Stefán Árni Pálsson skrifar
Svona á að fagna marki.
Svona á að fagna marki.
„Af því að Ingi Björn tengdasonur okkar setur aldrei neitt á Twitter ætla ég bara að gera það fyrir hann. Svona fagnar maður vel heppnuðu víti United á 90. mínútu,“ segir Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarkona fjármálaráðherra, á Twitter og birtir í leiðinni myndband af tengdasyni sínum Inga Birni Grétarssyni sem gjörsamlega missti vitið á skrifstofunni þegar Marcus Rashford tryggði Manchester United farseðilinn í 8-liða úrslita Meistaradeildar Evrópu í París í gærkvöldi.

Rashford skoraði úr vítaspyrnu þegar venjulegum leiktíma var lokið og United vann leikinn 3-1 eins og liðið þurfti.

Ingi Björn er greinilega með öryggismyndavélakerfi á skrifstofu sinni og náðist því fagnaðarlætin þegar Rashford skoraði, eins og sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.