Musgraves sópaði til sín verðlaunum í flokki kántrítónlistar og vann auk þess aðalverðlaun kvöldsins: Grammy-styttuna fyrir plötu ársins. Childish Gambino gerði sig gildandi í öðrum helstu flokkum hátíðarinnar en hann fékk verðlaunin fyrir bestu smáskífuna, besta lagið og besta tónlistarmyndbandið fyrir lag sitt This Is America. Gambino mætti ekki á hátíðina og var fjarvera hans afar áberandi í sjónvarpsútsendingunni.

Breska söngkonan Dua Lipa var valin nýliði ársins og þá braut rapparinn Cardi B blað í sögunni með því að verða fyrsta konan til að hljóta Grammy-verðlaunin fyrir bestu rappplötuna.
Konur settu jafnframt svip sinn á hátíðina í ár en tónlistarkonan Alicia Keys var kynnir kvöldsins. Þá sáu konur um megnið af tónlistaratriðunum en á meðal þeirra sem tróðu upp voru Camila Cabello, Diana Ross, Jennifer Lopez, Dolly Parton, Miley Cyrus, Lady Gaga, Cardi B, St Vincent og Dua Lipa.
Sú síðastnefnda fagnaði auknum fjölda kvenna í hópi verðlaunahafa í þakkarræðu sinni og sagði greinilegt að konur hefðu „lagt sig fram“ síðan í fyrra. Þannig svaraði hún ummælum Neil Portnow, forseta Grammy-verðlaunanna, sem svaraði gagnrýni á kynjahalla síðustu hátíðar á þann veg að konur þyrftu að leggja sig fram til að vera tilnefndar.

Plata ársins: Golden Hour með Kacey Musgraves
Smáskífa ársins: This Is America með Childish Gambino
Nýliði ársins: Dua Lipa
Besta rappplatan: Invasion of Privacy með Cardi B
Besta R&B-platan: H.E.R. með H.E.R.
Besta rapplagið: God‘s Plan með Drake
Besta kántríplatan: Golden Hour með Kacey Musgraves
Lag ársins: This Is America með Childish Gambino
Besti poppdúettinn: Shallow með Lady Gaga og Bradley Cooper
Besti flutningur popplags: Lady Gaga fyrir lagið Joanne (Where Do You Think You‘er Goin‘?)
Besta poppplatan: Sweetener með Ariönu Grande
Besta hefðbundna poppplatan: My Way með Willie Nelson
Besta jaðarrokkplatan: Colors með Beck
Besti kántríflutningur: Kacey Musgraves fyrir Butterflies
Besta kántrílagið: Space Cowboy með Kacey Musgraves
Besta tónlistarmyndbandið: This Is America með Childish Gambino
Besta lagið í kvikmynd/sjónvarpi: Lady Gaga, Mark Ronson, Anthony Rossomando og Andrew Wyatt fyrir Shallow
Besta rokklagið: Masseduction með St Vincent
Besta rokkplatan: From the Fires með Greta Van Fleet