„Hraður leikur liðsins var kannski það helsta sem að vafðist fyrir Julijan“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. febrúar 2019 12:00 Julijan Rajic sést hér búinn að setja hindrun fyrir Jeb Ivey. Vísir/Daníel
Króatíski miðherjinn Julijan Rajic hefur spilað sinn síðasta leik í Domino´s deild karla í vetur en Njarðvíkingar létu hann fara. Julijan Rajic yfirgefur kannski Njarðvík og Domino´s deildina en ekki Ísland. Julijan mun nefnilega ganga til liðs við Hamar í Hveragerðinni í 1. deildinni. „Julijan verður seint sakaður um að vera ekki góður liðsmaður og prýðis piltur í alla staði. En hraður leikur liðsins var kannski það helsta sem að vafðist fyrir Julijan og því var ákveðið að leyfa honum að finna sér nýtt verkefni. Julijan er þakkað fyrir sín störf fyrir klúbbinn og við óskum honum velfarnaðar á nýjum stað,“ segir í frétt á heimsíðu Njarðvíkur. Eftir að leikstjórnandinn frábæri Elvar Már Friðriksson kom til Njarðvíkur þá hefur hraði í leik liðsins aukist talsvert. Julijan Rajic var með 7,1 stig og 4,9 fráköst á 15 mínútum að meðaltali í leik með Njarðvík í vetur. Hann var aftur á móti með 16,5 stig og 7,5 fráköst að meðaltali í fyrstu tveimur leikjum Njarðvíkur í vetur en náði ekki að fylgja því eftir. Njarðvíkingar geta náð fjögurra stiga forskoti á toppi Domino´s deildarinnar með sigri á Haukum á Ásvöllum í kvöld. Hamar er á fullu í baráttunni um sæti í Domino´s deildinni á næsta tímabili en liðið er eins og er í 4. til 5. sæti, fjórum stigum frá öðru sætinu.
Dominos-deild karla Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti „Takk fyrir ástina“ Fótbolti „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Fótbolti Hefja formlegar viðræður við Iraola Enski boltinn Fleiri fréttir Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Sjá meira