Maciej: Ég er ekki búinn að hitta neitt síðan í nóvember Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar 7. febrúar 2019 21:21 Maciej var stigahæstur í liði Njarðvíkur í kvöld mynd/njarðvík
Maciej Baginski átti flottan leik í liði Njarðvíkur er þeir unnu öruggan sigur á nágrönnum sínum úr Grindavík, 94-65 í Dominos-deild karla. „Tilfinningin er bara mjög góð. Við erum alltaf að reyna að bæta okkur. Vörnin var svona í áttina að því sem var í seinasta leik. Við byrjuðum hins vegar ekki vel báða hálfleikina.“ Maciej var stigahæstur í liði Njarðvíkur með 23 stig, en hann var heitur fyrir utan þriggja stiga línuna og setti niður sex þrista í leiknum. „Ég er ekki búinn að hitta neitt síðan í nóvember þannig loksins datt þetta, vonandi heldur þetta áfram í framhaldinu.“ Skemmtileg staðreynd úr leiknum í kvöld, en þá klúðraði Maciej fleiri vítaskotum heldur en þriggja stiga skotum. Maciej segir það hins vegar ekki auðveldara að hitta fyrir utan þriggja stiga línuna heldur en af vítalínunni. „Nei vítin eru bara hausinn á manni. Ef maður er eitthvað vanstilltur, þá detta þau ekki ofan í.“ Framundan eru spennandi tímar hjá Njarðvíkingum. Liðið er með fjögurra stiga forystu á toppi deildarinnar þegar liðið á eftir að leika fjóra leiki. Stjarnan er í öðru sæti, og eiga leik til góða. Þá er liðið komið í undanúrslit í Geysisbikarnum. Njarðvíkingar mæta Íslandsmeisturum KR í undanúrslitum en sá leikur fer fram eftir viku. Vinni þeir gegn KR leika þeir til úrslita þann 16. febrúar. Það eru því tveir titlar í augsýn hjá Njarðvíkingum, deildarmeistaratitillinn og bikarmeistaratitillinn. Langt er síðan Njarðvíkingar lyftu titli og eru þeir þyrstir í Ljónagryfjunni. „Það sem er jákvætt í þessu, þá er þetta allt í okkar höndum. Við erum enn að reyna að vinna fyrsta sætið í deildinni fyrir úrslitakeppni, og í bikarnum geta leikir dottið hvernig sem er. Þannig þetta er allt í okkar höndum og við erum mjög sáttir með það.“
Dominos-deild karla Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti „Takk fyrir ástina“ Fótbolti „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Fótbolti Hefja formlegar viðræður við Iraola Enski boltinn Fleiri fréttir Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Sjá meira