Naumhyggja Marie Kondo á ekki upp á pallborðið hjá Margréti Kristín Ólafsdóttir skrifar 21. janúar 2019 15:30 Tiltektardrottningarnar Marie Kondo og Margrét Sigfúsdóttir fylgja ekki alveg sömu aðferðum þegar kemur að því að halda röð og reglu á heimilinu. Mynd/Samsett
Þættir japönsku tiltektardrottningarinnar Marie Kondo hafa notið mikilla vinsælda á Netflix síðan þeir voru frumsýndir á streymisveitunni þann 1. janúar síðastliðinn. Í þáttunum, sem bera heitið Tidying Up, hjálpar Kondo bandarískum fjölskyldum að koma röð og reglu á hlutina með sérstakri tiltektaraðferð sinni, svokallaðri KonMari-aðferð. Margréti Sigfúsdóttur, skólastýru Hússtjórnarskóla Reykjavíkur og sérfræðingi í tiltekt, þykir Kondo þó ganga helst til langt í naumhyggjunni. Kondo er ein sú þekktasta í tiltektarbransanum en hún hóf ferilinn í heimalandi sínu, Japan. Hún segist snemma hafa fengið áhuga á tiltekt og þegar hún var nítján ára hóf hún að taka til heima hjá vinum sínum gegn greiðslu. Það gekk bersýnilega vonum framar. Kondo náði þannig gríðarmiklum vinsældum í Japan áður en hún nam land í öðrum heimsálfum en bók hennar, The Life-Changing Magic of Tidying Up, kleif á topp metsölulista í Bandaríkjunum eftir að hún kom fyrst út á ensku árið 2014. Þess má jafnframt geta að bókin hefur verið þýdd yfir á íslensku og ber heitið Taktu til í lífi þínu! í útgáfu Forlagsins.Hin ósvikna gleði hlutanna En hvað er það við Kondo sem sker hana úr hópi annarra tiltektar- og hreingerningargúrúa? Kondo starfar eftir sérstakri aðferð, KonMari-aðferðinni, sem jafnframt er hennar eigin hugarsmíð. Aðferðin grundvallast á því að aðeins sé haldið í þá hluti sem vekja ósvikna gleði innra með manni. Þessa gleði á að hafa að leiðarljósi þegar farið er í gegnum innanstokksmuni heimilisins – með það fyrir augum að grisja til. „Haltu aðeins hlutunum sem höfða til hjarta þíns og hentu hlutunum sem vekja ekki lengur gleði. Þakkaðu þeim fyrir þjónustuna og slepptu þeim svo lausum,“ segir á heimasíðu KonMari-aðferðarinnar. Kondo skiptir hlutum í fimm flokka: Föt, bækur, pappíra, hluti af ýmsum toga („komono“) og loks hluti sem maður tengist tilfinningaböndum. Mikilvægt er að fara yfir hlutina í þessari röð en við yfirferðina skal jafnframt beita sex reglum sem finna má hér. Í myndbandinu hér að neðan má svo sjá Kondo brjóta saman föt, að sjálfsögðu eftir sérstakri KonMari-aðferð.Mikil og gasaleg samanbrot Margrét Sigfúsdóttir, skólastýra Hússtjórnarskóla Reykjavíkur og fyrrverandi stjórnandi þáttanna Allt í drasli, hefur kynnt sér KonMari-aðferðina og gluggað í bókina Taktu til í lífi þínu!, sem kom Kondo á kortið vestanhafs. Margrét segist þó aðspurð ekki hafa prófað aðferðirnar sem Kondo boðar bæði í bókinni og sjónvarpsþáttunum enda þyki henni sú síðarnefnda ganga heldur langt í boðskap sínum.Margrét Sigfúsdóttir er skólastjóri Hússtjórnarskóla Reykjavíkur.Fréttablaðið/ernir„Öll þessi samanbrot, mér finnst þetta svo svakalega mikið og gasalegt,“ segir Margrét í samtali við Vísi. „Mér finnst rosalega mikil naumhyggja hjá henni.“ Þó að Margrét aðhyllist ekki KonMari-aðferðina segir hún mikilvægt að sanka ekki að sér of miklu dóti, slíkt geti haft hamlandi áhrif á heimilislífið. „Við fluttum á nýjan stað í haust og ég var búin að sortera og sortera, en samt þurfti ég að sortera meira og gefa og láta frá mér. Allt sem var inni í skápum, öll glösin og allir diskarnir, bara vá. Maður er ekki alltaf að bjóða sextíu köllum upp á vískí, maður á bara að losa sig við þetta. Maður fær þá bara lánuð glös.“Nauðsynlegt að fara yfir fataskápana Þá hefur Margrét það jafnframt fyrir reglu að fara vandlega yfir fataskápa á heimilinu tvisvar á ári. „Það verður að gera það. Maður heldur að maður noti flík en svo hangir hún inni í skáp í heilt ár, auðvitað gefur maður hana frá sér. Ekki liggja á einhverju gömlu sem er aldrei notað. Það er alltaf einhver sem getur notað þetta, annars safnar þetta bara ryki,“ segir Margrét, sem gengur þó ekki jafnlangt og Kondo í naumhyggjunni. „En það sem maður notar endrum og sinnum, og þykir gaman að fara í, maður er ekkert að láta það frá sér. Ég skil alveg hennar stefnu en mér finnst það svolítið of mikið.“Tilfinningaþrungið og óvægið ferli? Það er einkum kjarninn í KonMari-aðferðinni, viðhorf Kondo til hlutanna, sem vakið hefur athygli og stundum orðið að þrætuepli á samfélagsmiðlum. Kondo talar við innanstokksmuni eins og þeir séu lifandi og boðar enn fremur þá speki að heimilið sjálft sé lifandi vera. Þannig má sjá húsmóður fyrsta heimilisins í Netflix-seríunni bresta í grát þegar Kondo biður fjölskylduna að þakka húsinu fyrir að hafa reynst vel í gegnum tíðina. KonMari-ferlið getur því verið afar tilfinningaþrungið. Speki Kondo hefur enn fremur reynst mörgum yfirþyrmandi en svo virðist sem fjöldi fólks hafi reynt á tiltektaraðferðir hennar og strandað á miðri leið, þó að þar sé líklega ekki við Kondo sjálfa að sakast. Þá hefur Kondo verið sérstaklega gagnrýnd fyrir viðhorf sitt til bóka en það er sá flokkur sem fólki hefur þótt einna erfiðast að grisja. Kondo segist sjálf leitast við að eiga ekki meira en þrjátíu bækur í einu en gagnrýnisraddir hafa sagt það viðmið of lágt. Samfélagsmiðlanotendur virðast þó almennt gefa lítið fyrir slíka gagnrýni og segja margir viðhorf Kondo til bókaeignar alls ekki jafnróttækt og haldið hefur verið fram.reminder that a huge part of the backlash against Marie Kondo was because a 47 yo white lady saw Kondo saying “books should bring joy” & immediately decided that she was actually saying “you shouldn't have books with challenging & complicated content” & started a Hashtag Uprising pic.twitter.com/bikfSDHQzL— welp here i am again (@sugaryscorpion) January 14, 2019 Af ofantöldu má ráða að aðferðir Kondo eigi ekki upp á pallborðið hjá öllum. Blaðamaður Vox kemst til að mynda að þeirri niðurstöðu að boðskapur Kondo taki naumhyggju ekki endilega opnum örmum. Grundvallarhugmyndin um að allt þurfi að vekja gleði sé í raun afar kostnaðarsöm þar sem nýir hlutir hljóti að koma í stað þeirra sem fara, í einhverjum tilvikum að minnsta kosti. Þá hafa áhrif KonMari-aðferðarinnar á andlega heilsu fólks einnig verið til umræðu. Töluvert hefur jafnframt borið á umræðu um speki Kondo meðal Íslendinga á samfélagsmiðlum, enda virðist þjóðin nokkuð meðtækileg fyrir tiltektar- og hreingerningarráðum eins og vinsældir samfélagsmiðlastjörnunnar Sólrúnar Diego eru til vitnis um. Líkt og sjá má af umræðunni hér að neðan virðast skiptar skoðanir ríkja um Kondo og þá sem aðhyllast aðferðir hennar, hóp sem stundum hefur verið lýst sem sértrúarsöfnuði.Það er ný horror sería kominn á Netflix, Tidying Up. Sértrúarsöfnuður sem heldur að lífshamingjuna sé að finna í sótthreinsuðu Instagram vænu umhverfi og talar við dótið í kringum sig.— €irikur Jónsson (@Eirikur_J) January 6, 2019 Fannst ég búin að horfa á of mikið af glæpaþáttum í fæðingarorlofinu, àkvað að horfa á Marie Kondo til að kjarna mig aðeins... turns out þessi gígantísku amerísku hoarding heimili valda mér talsvert meiri stress-svita heldur en morðráðgáturnar hinn sanni hryllingur — Sunna Ben (@SunnaBen) January 13, 2019 Ok þetta er eins mikil anti-MarieKondo stemning og ég get ímyndað mér af HVERJU að eiga svona í dag?— Maria Gunnarsdottir (@mariakgun) January 10, 2019
Hús og heimili Netflix Tengdar fréttir Innlit í skápana hjá minimalistanum Margréti Björk Háskólaneminn Margrét Björk Jónsdóttir var orðin þreytt á endalausu drasli og allt of miklum tíma sem fór í að taka til dót og föt sem hún hafði í raun engin not fyrir. 22. febrúar 2018 12:30 Mest lesið Bein útsending frá Bergmáli á Þingvöllum Tónlist Dóttir Obama í íslenskri hönnun Tíska og hönnun Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Lífið Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Lífið Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Lífið James Burrows látinn Bíó og sjónvarp Gull og gimsteinar leynast víða Lífið „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Lífið Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum Lífið Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Lífið Fleiri fréttir Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Gull og gimsteinar leynast víða Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Sjá meira
Innlit í skápana hjá minimalistanum Margréti Björk Háskólaneminn Margrét Björk Jónsdóttir var orðin þreytt á endalausu drasli og allt of miklum tíma sem fór í að taka til dót og föt sem hún hafði í raun engin not fyrir. 22. febrúar 2018 12:30