Lífið

Fæddist sonur sjö mánuðum eftir andlát XXXTentacion

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
X á góðri stundu.
X á góðri stundu. Matias J. Ocner/Getty
Bandaríski rapparinn XXXTentacion sem var skotinn til bana í Flórída í júní á síðasta ári, er nú orðinn faðir, rúmum 7 mánuðum eftir andlát sitt.

Unnusta rapparans, Jenesis Sanchez, fæddi í gær dreng sem fengið hefur nafnið Gekyume Onfroy. Móðir rapparans tilkynnti um fæðinguna við miðla vestanhafs í gærkvöldi.

XXXTentacion, eða X eins og hann er iðulega kallaður af aðdáendum sínum, var skotinn til bana í júní síðastliðinn í Flórída í Bandaríkjunum. Yfirvöld segja morðið á rapparanum tengjast meintri innbrotstilraun.

Fjórir menn eru nú í haldi og bíða málsmeðferðar vegna morðsins á rapparanum.

Ferill rapparans, sem réttu nafni hét Jahseh Dwayne Onfroy, litaðist að miklu leyti af þunglyndi og fjöldanum öllum af ásökunum um ofbeldi á hendur honum. Hann hefur meðal annars verið sakaður um heimilisofbeldi árið 2016, gegn þáverandi sambýliskonu hans. Ku ofbeldið hafa verið bæði líkamlegt og andlegt.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.