Lífið

Innlit í 1,7 milljarða lúxusíbúð á Manhattan

Stefán Árni Pálsson skrifar
Conover fer yfir eignina með félaga sínum.
Conover fer yfir eignina með félaga sínum.
Bandaríski stjörnufasteignasalinn Erik Conover birtir myndband af lúxusíbúð á Manhattan í New York þar sem hann leyfir fylgjendum sínum að sjá eignina.

Um er að ræða íbúð sem metin er á 14 milljónir dollara eða því sem samsvarar 1,7 milljörðum íslenskra króna.

Alls eru fjögur svefnherbergi inni í íbúðinni og fjögur baðherbergi. Íbúðin er tæplega þrjú hundruð fermetrar að stærð en veröndin er einnig um þrjú hundruð fermetrar. Þar má finna glæsilega einkasundlaug.

Hér að neðan má sjá innlit í þessa rosalegu íbúð á einum dýrasta stað heims.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.