Jaguar Land Rover á grænu ljósi Finnur Thorlacius skrifar 29. nóvember 2018 22:30 Milljarða þróunarverkefni við að koma á samtali milli bíla og umferðarljósa er nú í gangi hjá breskum stjórnvöldum.
Jaguar Land Rover tekur nú þátt í 20 milljón sterlingspunda þróunarverkefni á vegum breskra stjórnvalda sem hefur að markmiði að koma á „samskiptum“ milli bíla og umferðarljósa þannig að hægt sé að koma á sem hagkvæmustu flæði á bílaumferðina með því að lágmarka bið á rauðu ljósi. Slíkt myndi draga úr eldsneytiseyðslu og mengun. Ávinningurinn yrði þá um leið bætt loftgæði og jafnvel minni viðhaldskostnaður ökumanna á bremsubúnaði sem orsakast af stöðugri hægingu bíla í átt að rauðu ljósi.Ekur á hagkvæmasta hraða Jaguar Land Rover notar Jaguar F-Pace í tilraunum sínum í verkefninu en F-Pace er nú þegar með ýmsa háþróaða tækni til ökuaðstoðar, svo sem Advanced Driver Assistance (ADAS) sem nú er ætlunin að þróa áfram með nettengingum til að fjölga eiginleikum kerfisins. Þróunarverkefnið heitir Vehicle-to-Infrastructure (V2X) og tæknin sem stuðst er við í þróun kerfisins Green Light Optimal Speed Advisory (GLOSA) sem nú er verið að þróa áfram í núverandi ökuaðstoðarkerfi F-Pace tilraunabílsins.Þróar gatnamótaviðvörun Auk ökuaðstoðarkerfisins Advanced Driver Assistance (ADAS) vinnur fyrirtækið enn fremur að frekari þróun gatnamótaviðvörunarinnar Intersection Collision Warning (ICW) sem varar ökumann við eigi hann á hættu að lenda í árekstri haldi hann ótrauður áfram yfir aðvífandi gatnamót. ICW greinir aðra bíla við gatnamótin og skipuleggur hver fari fyrstur yfir. Þessi eiginleiki verður einnig tengdur GLOSA.Fleira hangir á spýtunni Tæknisérfræðingar Jaguar Land Rover hafa einnig reiknað tapaðan tíma sem fer í leit ökumanna að lausu bílastæði. Því hyggst fyrirtækið einnig þróa kerfi sem veitir upplýsingar um laus stæði í nágrenni fyrirhugaðs áfangastaðar ökumanns til að spara tíma og minnka eldsneytiseyðslu og mengun. Einnig er ætlunin að setja búnað í bílana sem lætur ökumann vita sé slökkviliðs-, sjúkra- eða lögreglubíll í forgangsakstri að nálgast svo ökumaðurinn geti vikið frá í tæka tíð. Þessum viðbótum verður bætt við núverandi ökuaðstoðarkerfi bíla Jaguar Land Rover sem nú þegar býr yfir ýmissi hagnýtri tækni, svo sem aðlögunarhæfa hraðastillinum Adaptive Cruise Control.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Sorglegt að sjá hversu gaman þetta var fyrir þá“ Innlent Flestir starfsmenn USAid sendir í leyfi og 2.000 störf lögð niður Erlent Kristrún og fleiri leiðtogar mæta til Kænugarðs Innlent Kafað eftir reiðhjóli í Reykjavíkurhöfn Innlent Hefur áhyggjur af mikilli notkun melatóníns hjá börnum Innlent Grét þegar hún kom á Ásbrú og hélt að lífið væri búið Innlent Íhaldsmenn sigruðu en öfgahægrið náði sögulegum árangri Erlent Sendu skriðdreka inn á Vesturbakkann í fyrsta sinn í 23 ár Erlent Afstýrði vopnuðu ráni í Kópavogi: „Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ Innlent Ökumaður með hníf og kylfu en farþegi með heimatilbúnar sprengjur Innlent