Lífið

„Kom oft upp að maður táraðist“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Aron Einar Gunnarsson hefur upplifað tímana tvenna.
Aron Einar Gunnarsson hefur upplifað tímana tvenna. vísir/vilhelm
Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði og leikmaður Cardiff í ensku úrvalsdeildinni gaf á dögunum út bókina Aron – Sagan mín. Þar fer hann ítarlega yfir ferilinn, uppvaxtarárin á Akureyri og lífið í heild sinni.

Aron Einar er tíundi gestur Einkalífisins en í þáttunum er rætt við einstaklinga sem hafa skarað fram úr á sínu sviði. Í dag er Aron giftur Kristbjörgu Jónasdóttur og á með henni tvo drengi.

Í bókinni opnar Aron sig um hluti sem hann hefur aldrei áður rætt opinberlega um.

„Það var alveg margt og mikið erfitt að fara í gegnum í þessari bók,“ segir Aron en Einar Lövdahl Gunnlaugsson skrásetti bókina og talar fyrirliðinn um hann sem einskonar sálfræðing fyrir sig.

Aron Einar kemur inn á margt í bók sinni.vísir/vilhelm
„Ég var að rifja upp skemmtilega hluti sem við vitum öll um en síðan einnig aðra hluti sem maður var að díla við sjálfur. Það kom oft upp, ég veit ekki hvort Einar hafi tekið eftir því, að maður táraðist þegar maður var að rifja upp erfiða hluti. Þá þurfti ég bara að taka mér pásu og svo bara áfram gakk. Það voru ýmsir hlutir þarna sem maður þurfti að grafa djúpt til þess að ná í.“

Í þættinum fer Aron Einar einnig yfir alla athyglina sem hann hefur fengið í gegnum tíðina, þá gríðarlegu ást sem hann hefur á Akureyri, um eiginkonu sína Kristbjörgu og syni þeirra, um áhugamálin og um það hvernig fyrirliðinn ætlar með Ísland aftur á stórmót.

Hér að ofan má sjá þáttinn í heild sinni en þetta er síðasti þátturinn af Einkalífinu fyrir áramót en þátturinn snýr aftur á nýju ári.


Tengdar fréttir

Reyndist vel að lenda á milli tannanna á fólki

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er 27 ára alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Áslaug er ungur þingmaður sem hefur náð mjög langt á stuttum tíma en hún er fjórði gestur Einkalífsins á Vísi.

Pabbi var mín besta forvörn

Heiðar Logi Elíasson er einn þekktasti brimbrettakappi landsins. Hann starfar meðal annars sem fyrirsæta, er með sítt, ljóst og fallegt hár og vakti athygli lesenda Vísis á dögunum þegar hann var fastur í Málmey í fjóra daga án vatns og matar.

Árin án móður sinnar í Rússlandi voru lærdómsrík

Katrín Lea Elenudóttir var krýnd Miss Universe í ágúst en hún mun taka þátt í 67. Miss Universe keppninni í Bangkok í desember. Katrín er í fullum undirbúningi fyrir keppnina og er hún þriðji gestur Einkalífsins á Vísi.

„Hún er algjörlega stelpan fyrir mig“

Gunnar Nelson er besti bardagamaður Íslands og hefur náð gríðarlega langt í sínu sporti og þá sérstaklega í UFC. Hann er í 14. sæti á styrkleikalistanum hjá UFC og mætir Alex Oliveira í Toronto þann 8. desember.

Páll Óskar ætlar alfarið að sniðganga Eurovision

"Ég fer í Eurovision þegar það kemur flott lag og ég hef ekki fengið inn lag sem kýlir mig kaldan,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson sem er áttundi gestur Einkalífsins en í þáttunum er rætt við fólk sem skarar fram úr á sínu sviði.

„Það erfiðasta sem ég hef gert“

Leikkonan Kristín Þóra Haraldsdóttir fer á kostum í kvikmyndinni Lof mér að falla en þar leikur hún sprautufíkil sem hefur misst öll tök á lífi sínu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.