Houston Rockets strax búið að gefast upp á Carmelo Anthony Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. nóvember 2018 16:15 Carmelo Anthony. Vísir/Getty
Carmelo Anthony hefur misst af tveimur síðustu leikjum með Houston Rockets í NBA-deildinni og ástæðan eru sögð vera veikindi. Orðrómurinn er hinsvegar að Houston Rockets sé að leita að leið til að losa sig við leikmanninn. Það er óhætt að segja að Houston Rockets hafi gengið illa með Carmelo Anthony innanborðs á þessu tímabili og frammistaða þessa verðandi heiðurshallarmeðlims hefur ekki verið upp á marga fiska. ESPN slær því upp í dag að liðsfélagar Carmelo Anthony hjá Houston Rockets haldi að hann hafi spilað síðasta leik sinn fyrir félagið.Several players and members of the Rockets coaching staff believe that Carmelo Anthony has played his final game for the franchise, according to sources. https://t.co/y252pDC3A8 — SportsCenter (@SportsCenter) November 12, 2018Forráðamenn Houston Rockets hafa hafnað þessum fréttum og halda enn fram að Carmelo Anthony muni spila aftur með liðinu þegar hann nær sér af veikindunum en fréttirnar úr leikmannaherbúðum Houston Rockets segja hinsvegar allt aðra sögu. Í frétt ESPN segir að Houston Rockets leiti nú leiða til að losa sig við Carmelo Anthony á „virðulegan“ hátt fyrir þennan 34 ára leikmann sem er nú aðeins skugginn af sjálfum sér frá því fyrir nokkrum árum. Carmelo Anthony hefur spilað 10 leiki með Houston og er með 13,4 stig og 5,4 fráköst að meðaltali í leik en hann hefur aðeins hitt úr 40 prósent skota sinna. Houston tapaði sex af þessum tíu leikjum. Lélegt skotval og skelfilegur varnarleikur er aftur á móti það er skaðlegast fyrir lið Houston sem hefur ekki náð að fylgja eftir flottri frammistöðu sinni á síðustu leiktíð þegar liðið var eitt allra besta lið NBA-deildarinnar.
NBA Mest lesið Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Fótbolti Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Maður dagsins á HM: Gat valið um fjórar íþróttir sem táningur Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti Hildur til Newcastle Enski boltinn Fleiri fréttir Bein útsending: Ísland - Tyrkland | Fara stelpurnar okkar lengra í A-deild? Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk Sjá meira