„Sorgmædd yfir því að það væri ekki nægilega mikið vatn í baðinu til að ég gæti drekkt mér“ Stefán Árni Pálsson skrifar 13. nóvember 2018 10:30 Tobba Marínós opnaði sig í Íslandi í dag í gærkvöldi. „
Af hverju þykir sjálfsagt að konur sleppi lyfjum í fæðingu en að fólk fái þau í öllum öðrum aðgerðum,“ spyr Tobba Marínós sem segir að allt sem hún hafði heyrt um meðgöngu og fæðingar sé haugalygi. Í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi sagði Tobba, sem er nýorðin tveggja barna móðir, áhorfaendum frá því hvernig þetta er í raun og veru og fer alls ekki í kringum hlutina. Fjölmiðlakonan Þorbjörg Marinósdóttir og unnusti hennar Baggalúturinn og borgarfulltrúinn fyrrverandi Karl Sigurðsson eignuðust á dögunum dóttur. „Ég er bara svo fegin að hún sé fædd og þetta sé búið og allt saman yfirstaðið. Ég komst að því að heimurinn er lygasjúkur af því að það er alltaf verið að segja að þú gleymir þessu strax þegar þú ert komin með barnið, það er kjaftæði þú gleymir engu og það er hræðilegt vont og erfitt að eignast barn,“ segir Tobba. Hún segir að auðvitað gangi þetta misvel hjá konum og er misjafnlega erfitt.Tobba hefur gengið í gegnum tvær meðgöngur.„Við erum líka mikið að bera okkur saman við aðrar konur sem er mjög ósanngjarnt. Ég var til dæmis í tvo sólahringa með níu í útvíkkun og það þurfti að sauma mig á fjórum stöðum. Ég á bara ekkert sameiginlegt með konu sem eignaðist barn á þremur klukkutímum. Svo geta börnin verið misstór og allt það og það er því ekki hægt að vera bera sig saman. Maður er kannski nýkomin heim að hanga saman út úr taugaður handónýtur og það er verið að spyrja þig hvort þú hafir fengið mænurótardeyfingu og það er einhverskonar mælikvarði á þig sem manneskju.“ Tobba segir að fyrir fyrri fæðinguna hafi hún gert allt eins og hafði verið mælt með. Hún keypti sér ilmkerti, stundaði jóga og allt sem hún hafði heyrt. „Ég ætlaði að taka þetta svo náttúrulega en svo hugsaði ég bara, jesús minn það eru kannski tuttugu klukkutímar eftir og ég hef enga stjórn á þessu og þetta er allt hræðilegt. Ég horfði bara ofan í baðið og varð svo sorgmædd yfir því að það væri ekki nægilega mikið vatn í baðinu til að ég gæti drekkt mér. Það var það eina sem ég gat hugsað. Svo fékk ég glaðloftið og mænurótardeyfinguna og allt það og þetta var bara mjög langt, sársaukafullt of erfitt.“ Hún segir að það hafi aldrei neinn sagt henni að þetta yrði svona rosalega langt og erfitt.Tobba og Karl eiga í dag tvær dætur.„Fæðing er það eina sem gerist sem það þykir ásættanlegt að þú sér í svona miklum sársauka lengi og hann sé ekki verkjastilltur. Þetta er erfitt og það er allskonar í boði. Þetta snýst bara um það að vera ekki búin að ákveða eitthvað og vera svo í öngum sínum yfir því að það gangi ekki eftir,“ segir Tobba sem verður oft fyrir því sem hún kallar mæðraskömm að hún sé ekki að gera hlutina nægilega vel. Fyrstu dagana hafi hún verið mjög tilfinninganæm og helst ekki viljað taka á móti gestum. „Maður verður bara að hugsa um sjálfan sig. Fólk gerir sér ekki grein fyrir þessu því það ætlar bara rétt að fá að kíkja. Þú ert að fara hella upp á kaffi og gefa fólki. Svo fékk á stálma og blæðandi geirvörtur og þú ert ekki að fara leggja barnið og brjóst fyrir frama það því ég fór að hágráta í hvert einasta skipti sem ég gaf barninu, það var svo sársaukafullt.“ Hér að neðan má sjá þetta fróðlega spjall við Tobbu Marínós.
Mest lesið Hvað veistu um... fugla? Lífið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Lífið Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Lífið Sonurinn fékk nafnið Skógur Lífið Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Lífið Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Lífið Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Menning Fleiri fréttir Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Sjá meira