Fátt fær stöðvað meistarana Anton Ingi Leifsson skrifar 14. nóvember 2018 07:56 Klay Thompson var öflugur í nótt. vísir/getty
Golden State Warriors vann sjö stiga sigur á Atlanta, 110-103, í NBA-deildinni í nótt. Houston vann tíu stiga sigur á Denver og Cleveland kláraði Charlotte auðveldlega. Mikið jafnræði var með liðunum framan af leik og staðan í hálfleik var 52-49, Atlanta í vil. Um miðjan þriðja leikhluta tók Golden State forystuna. Þá forystu létu þeir aldrei af hendi og mest náðu þeir fjórtán stiga forskoti í fjórða leikhlutanum. Atlanta náði að minnka muninn en meistararnir stóðu áhlaupið af sér og unnu 110-103. Kevin Durant var afar öflugur í liði Golden State. Hann gerði 29 stig en næstur kom Klay Thompson með 24 stig. Í liði Atlanta var Taurean Prince stigahæstur með 22 stig. Meistararnir hafa byrjað tímabilið afar vel og þeir eru með tólf sigra í fyrstu fimmtán leikjunum. Það er hins vegar meira vesen á Atlanta sem hafa einungis unnið þrjá af fyrstu fjórtán leikjum sínum. Cleveland lenti ekki í miklum vandræðum með Charlotte Hornets, 113-89. Þeir tóku völdin strax í fyrsta leikhluta, voru 38-23 yfir eftir fyrsta leikhluta, og leiddu svo í hálfleik 67-51. Þeir héldu vel á spöðunum í síðari hálfleik og áttu Hornets fá áhlaup sem reyndu eitthvað á Golden State. Þeir unnu svo að lokum 24 stiga sigur, 113-89. Jordan Clarkson skoraði 24 stig fyrir Cleveland og David Nwaba bætti við átján stigum. Jeremy Lamb gerði 22 stig fyrir Charlotte. Charlotte er með 50% árangur í fyrstu fjórtán leikjunum en Cleveland hefur byrjað hörmulega; einungis með tvo sigra í fyrstu ellefu leikjunum. Houston vann svo tíu stiga sigur á Denver, 109-99, eftir jafnan og spennandi leik. Clint Capela gerði 24 stig fyrir Houston en stigahæstur hjá Denver var það Monte Morris með nítján stig.
NBA Mest lesið Mun Guðmundur reisa Holland við? Handbolti Einar mölbraut hendurnar á hlaupahjóli en átti magnað EM Sport Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Fótbolti Musiala hneig niður í annað skipti á fjórum dögum vegna galla í taugakerfi Fótbolti Í bann fyrir neyslu kókaíns: „Ekkert af þessu afsakar það sem ég gerði“ Sport Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Fótbolti Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Handbolti Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Enski boltinn Mourinho: Rodri fékk mig til að efast Fótbolti Myndi taka kúlu fyrir Infantino Fótbolti Fleiri fréttir Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjá meira