Lífið

Segir að Auddi sé ekki búinn að jafna sig á skilnaði foreldranna

Stefán Árni Pálsson skrifar
Auddi í tímanum.
Auddi í tímanum.
Auddi og Steindi fundu sálfræðing og geðlækni í Bólivíu í síðasta þætti af Suður-ameríska drauminum og fengu þeir fimm stig fyrir það að skella sér í tíma.

Til að byrja með fór Auðunn Blöndal í viðtal og byrjaði sálfræðingurinn á því að spyrja hann hvernig barnsæska hans hefði verið. Foreldrar Auðuns skildu þegar hann var 18 ára og segist Auddi hafa tekið þeim fréttum illa á sínum tíma.

Sálfræðingurinn benti Audda á að ræða við sálfræðing þegar hann kæmi aftur heim til Íslands.

Steindi var aftur á móti spurður út í kynlíf þar sem hann hafði áður gefið nokkuð sérstök svör þegar sálfræðingurinn sýndi honum mismunandi myndir.

Hér að neðan má sjá atriðið úr síðasta þætti en Suður-ameríski draumurinn verður á Stöð 2  klukkan 20:50 í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.