Erla Alexandra tekur þátt í Miss World fyrir Íslands hönd Stefán Árni Pálsson skrifar 10. október 2018 11:30 Erla er 24 ára lögfræðinemi við HR.
Erla Alexandra Ólafsdóttir tekur þátt í Ungfrú Heimur fyrir hönd Íslands en hún var í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun. „Ég er að fara til Kína í byrjun nóvember að keppa í Miss World,“ segir Erla sem tók þátt í Ungfrú Ísland árið 2015 en enginn keppni var haldin hér á landi í ár og forráðamenn Miss World höfðu samband við Lindu P um mögulegan keppandi út í Kína. „Þau vilja alltaf hafa fulltrúa frá Íslandi og spurðu hana hvort hún gæti fundið einhvern til að fara. Hún hafði samband við mömmu og mig og okkur fannst þetta vera tækifæri sem við gætum ekki sagt nei við,“ segir Erla sem er dóttir Guðrúnar Möller sem vann Ungfrú Ísland keppnina árið 1982. „Ég er mikil keppnismanneskja og auðvitað fer maður út með það hugafar að vilja gera land og þjóð stolt af manni. Þetta er líka bara ævintýri og lífsreynsla,“ segir Erla sem verður í heilan mánuð í Kína en hún fer út 8. nóvember og lokakvöldið er 8. desember. „Þetta eru rosalega margir viðburðir sem maður þarf að mæta á. Miss World eru í raun góðgerðarsamtök og hafa safnað yfir einum milljarði sterlingspunda í góðgerðamál í gengum tíðina. Flestir viðburðir eru tengdir því. Hver keppandi þarf að koma með hluti frá þeirra landi og þeir eru boðnir upp. Við erum rosalega mikið að fara á munaðarleysingjahæli og heimsækja börn og eigum að vekja athygli á málefnunum,“ segir Erla og bætir við að fegurðarsamkeppnir séu ekki endilega tímaskekkja og að það geti varla verið tímaskekkja að taka þátt í góðgerðamálum. Erla er 24 ára lögfræðinemi við HR. Hér að neðan má hlusta á viðtalið.
Mest lesið Hvað veistu um... fugla? Lífið Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Lífið Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Lífið Hvers vegna teljum við alla vera að dæma okkur (þegar enginn er að fylgjast með)? Áskorun Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Lífið Sonurinn fékk nafnið Skógur Lífið Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Lífið Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Lífið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Sjá meira