Lífið

Auddi hjálpaði Steinda með Tinder-reikninginn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þættirnir hefja göngu sína á föstudagskvöldið.
Þættirnir hefja göngu sína á föstudagskvöldið.
Þrátt fyrir að vera komnir á fertugs- og fimmtugsaldur eru þeir Auddi, Sveppi, Steindi og Pétur Jóhann óhræddir við að leyfa sínum innri börnum að leika lausum hala.

Þetta sést líklega hvergi betur heldur en í glænýrri þáttaröð af Suður-Ameríska draumnum, en fyrsti þáttur var forsýndur í Kringlubíói í dag.

„Það er alltaf smá stress, þetta er svona forsýning og fullt af fólki í bíó. Það væri leiðinlegt ef fullt af fólki kæmi í bíó og það myndi enginn hlægja,“ sagði Auðunn Blöndal áður en þeir félagar forsýndu fyrsta þátt af Suður-Ameríska draumnum í Kringlubíó í gær. Hann og allt gengið spjallaði við Ísland í dag fyrir sýninguna.

„Þetta eru okkar hörðustu gagnrýnendur og svo er mamma og einhverjir sem myndu hlægja sama hvað við erum að gera.“

„Bara rétt áðan sagði pabbi við mig að þetta yrði örugglega slæmt. Hann er strax byrjaður að brjóta þetta niður,“ segir Steindi Jr.

„Það eina sem fólk sagði við okkur áður en við fórum út: Þið verðið að fara varlega, þið við ekkert út í hvað þið eruð að fara. Svo kemur maður þarna út og þarna er bara venjulegt fólk sem er með fjölskyldur og er bara að vinna, með krakka í skóla og er bara að reyna gera daginn skemmtilegan,“ segir Sveppi sem er í liði með Pétri.

„Við svíkjum allt sem við lofum foreldrum okkar að gera ekki en maður er alltaf mjög stressaður þegar maður er að fara svona út, og sérstaklega ég en ég er mjög stressuð týpa. Auddi lætur mig daglega heyra það þarna úti og það fer í hans fínustu taugar hvað ég er stressaður,“ segir Steindi. Steindi þurfti að stofna Tinder-reikning í Suður-Ameríku og aðstoðaði Auðunn Blöndal hann við myndaval og allt ferlið. 

Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.