Arsenal er komið upp í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir sinn fimmta sigur í röð í deildinni. Í dag hafði liðið betur gegn Watford, 2-0, en bæði mörk þess komu á síðustu tíu mínútum leiksins.
Fyrra mark Arsenal var sjálfsmark Craig Cathcart eftir fyrirgjöf Alex Iwobi á 81. mínútu en aðeins tveimur mínútum síðar náði Mesut Özil að tvöfalda forystu Arsenal. Özil skoraði eftir fyrirgjöf Alexandre Lacazette en varnarmenn Watford sváfu á verðinum.
Petr Cech varð að fara af velli undir lok fyrri hálfleiks vegna meiðsla en í fjarveru hans náði Bernd Leno að halda marki Arsenal hreinu í síðari hálfleik. Leno varð til að mynda vel frá Andre Gray á meðan að staðan var enn markalaus.
Þetta var sjöundi sigur Arsenal í röð í öllum keppnum en Watford hefur nú tapað tveimur af síðustu þremur leikjum sínum eftir góða byrjun á tímabilinu. Arsenal er nú með fimmtán stig í fimmta sætinu en Watford með þrettán stig í því sjötta.
Arsenal upp fyrir Watford
